Forstjóri Haga: Forsætisráðherra sýnir mikið ímyndunarafl

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sakar kaupmenn um frekju og segir þá vilja hækka álagningu. Hann segir ríkis­styrki til land­búnaðar­framleiðslu og tolla á matvæli snúast um að stuðla að lágu matvæla­verði. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir hins vegar að landbúnaðar­verndin leiði til umfram­kostnaðar upp á 16 til 18 milljarða fyrir neytendur.

Finnur Árnason
Finnur Árnason For­stjóri Haga, sem reka Bónus og Hagkaup, segir að álagn­ing á sölu mat­væla hafi minnkað hjá félag­inu. For­sæt­is­ráð­herra sakar kaup­menn um að ætlar sér að auka álagn­ingu. Mynd: Youtube

Finnur Árnason, forstjóri Haga, er ósammála þeirri yfir­lýsingu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar forsætis­ráðherra í viðtali á Bylgjunni í morgun að styrkir og tollar vegna land­búnaðar­framleiðslu á Íslandi snúist um að stuðla að lágu matvæla­verði fyrir íslenska neytendur.

Sigmundur áfelldist kaupmenn fyrir „frekju“ vegna þess að þeir vildu leggja niður eða lækka tolla á innflutt matvæli, líkt og stendur til með fatnað og fleiri vörur. Hann segir Ísland vera „í meðaltali Evrópu­sambandsins í matvæla­verði“. Tölur OECD frá 2012 sýna hins vegar að Ísland hafi verið 18 prósent yfir matvæla­verði í Evrópu­sambandinu.

Segir neytendur borga 16 til 18 milljarða

„Það liggur fyrir því að það er mótsögn í því sem hann segir. Annars vegar segir hann að matvæla­verð sé lágt og hins vegar að verslunin sé að leggja of mikið á. Neytendur eru að borga sennilega 16 til 18 milljarða fyrir óhagkvæmt landbúnaðar­kerfi. Að kalla það frekju kaupmanna að fólk hafi skoðun á því er einföldun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár