Í lok september síðastliðins höfðu skuldir íslenskra fyrirtækja dregist saman um 5,5 prósent að raunvirði á síðustu tólf mánuðum. Þar skipti mestu máli að gengi íslensku krónunnar styrktist umtalsvert á tímabilinu, en rúmlega þriðjungur skulda íslenskra fyrirtækja er í erlendum gjaldmiðlum.
Þetta kemur fram í minnisblaði sem Seðlabanki Íslands sendi fjármálastöðugleikanefnd 3. desember síðastliðinn og hefur verið birt á vef bankans.
Þar segir enn fremur að sé leiðrétt fyrir gengis- og verðlagsáhrifum mældist 0,1 prósent vöxtur á skuldum fyrirtækja. „Nýjar lánveitingar til fyrirtækja hafa aukist lítillega á síðustu mánuðum en enn virðist eftirspurn fyrirtækja eftir lánsfé vera takmörkuð. Borið hefur á auknum tilfærslum fyrirtækjalána frá bankakerfinu til annarra lánveitenda. Umfangið er þó enn fremur lítið.“
Lánuðu frekar til íbúðarkaupa
Kerfislega mikilvægu bankarnir þrír: Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki hafa ekki verið að lána sem neinu nemur til fyrirtækja frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á. Þess í stað hafa þeir nýtt stóraukið svigrúm til útlána, sem fékkst með tímabundnu afnámi sveiflujöfnunarauka, til að lána til íbúðarkaupa einstaklinga. Tólf mánaða raunvöxtur skulda heimilanna var 6,5 prósent í lok september.
Allt árið í fyrra lánuðu kerfislega mikilvægir bankar á Íslandi samtal fyrirtækjum landsins 7,8 milljarða króna nettó. Til samanburðar var nettó heildarumfang nýrra útlána 105 milljarðar króna árið 2019 og tæplega 209 milljarðar króna árið 2018, þegar bankarnir lánuðu fyrirtækjum landsins 27 sinnum meira en í fyrra.
Í sumar virtist sem að útlánagleði banka til fyrirtækja væri að glæðast, en í júlímánuði lánuðum bankar landsins 15,6 milljarða króna til slíka. Ástandið var þó skammvinnt og næstu þrjá mánuði á eftir drógust útlán banka til fyrirtækja saman um rúmlega níu milljarða króna.
Vaxtamunur gæti aukist á ný
Vaxtamunur er munurinn á þeim vöxtum sem bankarnir greiða fólki og fyrirtækjum fyrir innlán sem þau geyma hjá þeim og vöxtunum sem þeir leggja á útlán. Bankarnir hafa stærstan hluta hagnaðar síns af honum.
Í áðurnefndu minnisblaði Seðlabanka Íslands segir að vaxtamunur banka hafi minnkað í kjölfar þess að bankinn hóf skarpa lækkun stýrivaxta í fyrravor. Sú lækkun var þó ekki stórkostleg. Til að mynda var vaxtamunur stóru bankanna þriggja var á bilinu 2,4-2,7 prósent á fyrri helmingi yfirstandandi árs, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 prósent að meðaltali. Til samanburðar er vaxtamunur hjá stórum norrænum bönkum undir einu prósenti, samkvæmt því sem fram kemur í ársriti Samtaka fjármálafyrirtækja.
Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti nokkuð skarpt síðustu mánuði, úr 0,75 prósent í maí í tvö prósent nú. Í minnisblaði Seðlabankans til fjármálastöðugleikanefndar segir að „vaxtamunur bankanna gæti aukist á ný samhliða hækkun á meginvöxtum Seðlabankans sem ætti að styrkja stöðu bankanna enn frekar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir