Hvetur til innleiðingar á óháðri innlendri greiðslulausn

Fjármála­stöðugleika­nefnd Seðla­bankans segir kerfis­áhættu vera vaxandi í hagkerfinu vegna hækkandi skulda og íbúða­verðs. Þó vill hún ekki breyta eigin­fjárkröfum bankanna í bráð, en telur brýnt að innleiða óháða innlenda greiðslu­lausn sem fyrst.

Brýnt er að óháð innlend greiðslu­lausn sem hefur ekki tengingu við alþjóð­lega korta­innviði verði innleidd hérlendis, svo að rekstrar­öryggi greiðslu­kerfa verði tryggt hérlendis. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá fjármála­stöðugleika­nefnd Seðla­banka Íslands sem birtist á vef bankans í morgun.

Sveiflujöfnunarauki óbreyttur, en tryggja þarf rekstrarsamfellu

Í yfir­lýsingu sinni segir nefndin að staða fjármála­stöðugleika sé góð þegar á heildina sé litið, þótt enn sé óvissa vegna faraldursins. Hins vegar bætir hún við að kerfis­áhætta hafi vaxið vegna hækkandi skulda og íbúða­verðs, en segir þó viðnáms­þrótt stóru bankanna þriggja vera mikinn, þar sem eiginfjár- og lausafjár­staða þeirra sé vel yfir lögbundnum mörkum og þeir hafi greiðan aðgang að fjár­mögnun.

Nefndin minntist þó á rekstrar­öryggi greiðslu­kerfa hérlendis, sem hún sagði að huga ætti að og minnti rekstrar­aðila á mikilvægi þess að tryggja samfellu í rekstri. Þar að auki sagði nefndin að brýnt sé að áfram verði unnið að innleiðingu á óháðri innlendri smágreiðslu­lausn án tengingar við alþjóð­lega korta­innviði.

Rafkróna möguleg greiðslulausn

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um vinnur Seðla­bankinn að slíkri lausn þessa stundina, en hún gæti falið í sér útgáfu svokallaðrar rafkrónu. Samkvæmt Guðmundi Kr. Tómassyni, sem situr í fjármála­stöðugleika­nefnd bankans, yrði slík lausn í raun rafrænt reiðufé sem hægt væri að nota t.d. úr rafveski í síma til að kaupa vörur og þjónustu beint og milli­liðalaust. Í viðtali í hlaðvarps­þættinum Ekon í sumar sagði hann að vinna að slíkri lausn væri komin langt á veg í Svíþjóð, þótt engin formleg ákvörðun hafi verið tekin þar í landi enn sem komið er.

Í síðasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika kemur fram að Seðla­bank­inn hafi skoðað útgáfu raf­krónu sem vara­greiðslu­miðl­un­ar­leið. Hins vegar segir bank­inn að mörg álita­efni þarfn­ast frek­ari skoð­unar áður en til ákvörð­unar kemur um slíka útgáfu, en hann kannar nú mögu­leg áhrif hennar á pen­inga­stefnu og fjár­mála­stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár