Sádi-Arabía áformar að byggja 170 kílómetra langa bíllausa borg

Engir vegir, ekkert vesen. Krónprins Sádi-Arabíu hefur kynnt áform um byggingu 170 kílómetra langrar borgar þar sem enginn íbúi mun þurfa að ganga lengur en 5 mínútur eftir allri nauðsynlegri þjónustu og öll ferðalög fara fram neðanjarðar.

Línan á að teygja sig 170 kílómetra inn í eyðimörkina.
Línan á að teygja sig 170 kíló­metra inn í eyði­mörk­ina. Mynd: Skjáskot úr kynningarmyndbandi Sáda

Mohammed bin Salman krónprins Sádi-Arabíu kynnti í upphafi árs gríðar­lega stórtækar áætlanir ríkisins um uppbyggingu borgar sem á að liggja í 170 kílómetra beinni línu á Rauða­hafsströnd ríkisins, í norðri, nærri landa­mærunum að Jórdaníu. Verkefnið gengur undir vinnu­heitinu Línan.

Þar eiga ekki að vera neinir vegir á yfir­borðinu og þeir milljón íbúar sem sagðir eru eiga að geta búið í borginni í fyllingu tímans eiga ekki að þurfa að ganga lengur en 5 mínútur eftir allri nauðsynlegri þjónustu, í hverfis­klösum sem verða byggðir í beinni línu frá ströndinni og lengst inn í eyði­mörkina. Borgin á að verða algjör­lega kolefnis­hlutlaus.

Þetta hljómar ótrúlega. Og sennilega er það tilfellið. Krónprisinn fullyrðir að hægt verði að ferðast úr einum enda borgarinnar í annan á einungis 20 mínútum.

Sádar virðast þannig sjá fyrir sér að ferðast verði með Hyperloop-ofur­hraðlestum í loft­tæmdum göngum undir yfir­borðinu á mörghundruð kílómetra hraða á klukku­stund. Sú tækni er ekki enn fullgerð, en hefur verið á teikniborðinu árum saman.

Undir yfir­borðinu á einnig að verða „ósýnilegt lag innviða“ þar sem vöru­flutningar fyrir borgarana munu fara fram.

Bin Salman segir í háfleygu kynningar­myndbandi að verkefnið sé hugsað til þess að takast á við vandann sem fylgi mengun og umferðar­slysum og til þess að koma í veg fyrir að fólk þurfi að verja klukku­stundum á dag í að koma sér til og frá vinnu. Allt sem fólk þurfi verði innan seilingar.

„Af hverju ættum við að fórna nátt­úrunni í nafni þróunar? Hví skyldu 7 milljón manns deyja árlega vegna mengunar? Hví ættum við að missa milljón manns árlega vegna umferðar­slysa?“ segir krónprinsinn meðal annars í mynd­bandinu.

Skýjaborg

Kynningin á Línunni hefur fengið af blendin viðbrögð og margir telja að þetta verkefni muni einungis verða til í skýrslum vel launaðra ráðgjafa krónprinsins. Bin Salman hefur á undan­förnum árum verið að reyna að teikna upp hvernig olíuríkið Sádi-Arabía getur tekist á við heim án olíu, sem auður ríkisins byggist að nær öllu leyti á.

Í óvæginni umfjöllun dálka­höfundar hjá bandaríska vefritinu VICE segir að hugmyndin sé hreinlega afspyrnu­heimskuleg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár