Jeff Bezos hefur aukið eignir sínar um 530 milljarða á mánuði í eitt ár

Forstjóri og stofnandi Amazon hefur hagnast ævintýra­lega á uppgangi fyrir­tækisins.

Á undan­förnum tólf mánuðum hefur Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon, aukið virði eigna sinna um 60 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 6.360 milljarða króna. Á mánuði nemur það um 530 milljörðum króna, og í þrjátíu daga mánuði eru það um 17,6 milljarðar á hverjum degi vikunnar.

Þetta svipar því að Bezos bæti við sig markaðs­virði alls hlutafjár sem skráð er á markað á Íslandi, á sex vikna fresti.

Sannarlega ótrúlegar tölur.

Aldrei í sögunni hafa eignir eins manns aukist jafn mikið og hratt, og er Bezos nú langsamlega ríkasti maður heimsins, samkvæmt lista Forbes tíma­ritsins, en eignir hans nema nú um 145 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 15.370 milljörðum króna. Þar munar mest um 17 prósent hlut í Amazon, en verð­miðinn á því fyrirtæki nemur nú um 820 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 90 þúsund milljörðum króna.

Á einu ári hefur markaðs­virði Amazon aukist um 350 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 37 þúsund milljörðum króna.

Aðeins Apple er verðmeira, en verðmiði þess er nú 944 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 100 þúsund milljörðum króna.

Bezos er einnig eigandi Washington Post og geim­ferðar- og rannsóknar­fyrir­tækisins Blue Origin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár