Vilja friða eina af fáum óspilltu leirum borgarinnar

Með áformum um frið­lýsingu Grafar­vogs innan Gullinbrúar er horft til þess að vernda til framtíðar náttúrulegt ástand vogsins og líffræði­lega fjöl­breytni hans, þ.m.t. mikil­vægar fjöru­vistgerðir, búsvæði fugla og óspillta leiru.

Fjölbreytt fuglalíf er við Grafarvog innan Gullinbrúar og fara þar um þúsundir vaðfugla. Svæðið er alþjóðlega mikilvægur viðkomustaður farfugla, einkum vaðfuglategunda.
Fjöl­breytt fugla­líf er við Graf­ar­vog innan Gull­in­brúar og fara þar um þús­undir vað­fugla. Svæðið er alþjóð­lega mik­il­vægur við­komu­staður far­fugla, einkum vað­fugla­teg­unda. Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverfis­stofnun, ásamt land­eiganda, sveitar­félaginu Reykjavík, hafa lagt fram til kynningar áform um frið­lýsingu Grafar­vogs innan Gullinbrúar sem friðland í samræmi við lög um náttúru­vernd.

Fjöl­breytt fuglalíf er við Grafarvog innan Gullinbrúar og fara þar um þúsundir vaðfugla. Svæðið er alþjóð­lega mikil­vægur viðkomu­staður farfugla, einkum vaðfugla­tegunda, s.s. rauðbrystings, sanderlu, lóuþræls, heiðlóu, jaðrakans og fleiri tegunda auk þess að vera mikil­vægur fæðuöflunar­staður fugla allt árið um kring.

Innri hluti svæðisins er einn af fáum óspilltum leiru­svæðum innan borgar­markanna. Grafar­vogur ásamt leirum er skráður á náttúru­minjaskrá sem einn mikil­vægasti viðkomu­staður farfugla, einkum vaðfugla, á höfuð­borgar­svæðinu, auk þess að vera hluti af stærri tillögu Náttúru­fræði­stofnunar Íslands (Elliðárvogur-Grafar­vogur) sem svæði á framkvæmda­áætlun (B-hluta) náttúru­minjaskrár í samræmi við lög um náttúru­vernd.

Leirur svæðisins, sem fóstra mikið fuglalíf, njóta jafnframt sérstakrar verndar samkvæmt 61. gr. laga um náttúru­vernd. Þá er vogurinn vinsælt útivistar­svæði og þykir aðgengi­legur til náttúru­upplifunar og fugla­skoðunar.

Með áformum um frið­lýsingu svæðisins er horft til þess að vernda til framtíðar náttúrulegt ástand Grafar­vogs og líffræði­lega fjöl­breytni hans, þ.m.t. mikil­vægar fjöru­vistgerðir, búsvæði fugla og óspillta leiru.

Áform þessi eru kynnt í samræmi við máls­meðferðar­reglur 2. og 3. mgr. 36. gr. náttúru­verndar­laga nr. 60/2013, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna. Í kjölfar kynningar­tímans munu fulltrúar Umhverfis­stofnunar, land­eiganda, sveitar­félaginu Reykjavík og umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins vinna drög að frið­lýsingar­skilmálum og leggja fyrir rétthafa lands og aðra sem hagsmuna eiga að gæta, segir í tilkynningu á vef Umhverfis­stofnunar. Fyrir­huguð frið­lýsing mun að því búnu verða auglýst opinber­lega og öllum gefinn kostur á að gera athuga­semdir við framlagða tillögu.

Frestur til að skila athuga­semdum við áformin er til og með 10. ágúst 2021. Athuga­semdum má skila á heimasíðu Umhverfis­stofnunar, með tölvu­pósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfis­stofnunar, Suður­landsbraut 24, 108 Reykjavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár