Raunávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna neikvæð í fyrra

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna á gríð­ar­legt magn af inn­lendum hluta­bréfum. Raun­á­vöxtun þeirra var nei­kvæð í fyrra og trygg­inga­fræði­leg staða sjóðs­ins versn­aði.

Raun­á­vöxtun Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna var nei­kvæð um 1,2 pró­sent í fyrra. Þar skiptir mest máli ann­ars vegar að raun­á­vöxtun á inn­lendu hluta­bréfa­safni sjóðs­ins var nei­kvæð um tvö pró­sent og að raun­á­vöxtun erlendrar verð­bréfa­eignar, sem er um 26 pró­sent af eignum sjóðs­ins, var nei­kvæð um 9,7 pró­sent vegna mik­illar styrk­ingar íslensku krón­unnar. Á móti kom að raun­á­vöxtun á skulda­bréfa­eign sjóðs­ins var jákvæð um 4,4 pró­sent. Ávöxtun sjóðs­ins í heild var jákvæð um 0,9 pró­sent. Þetta kemur fram í afkomutil­kynn­ingu sjóðs­ins sem send var út í gær.

Allt þetta leiddi til þess að trygg­inga­fræði­leg staða Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna versn­aði umtals­vert á síð­asta ár. Hún er nú 4,2 pró­sent en var 8,7 pró­sent árið áður. Breyt­ing­arnar skýr­ast einkum á slakri ávöxtun síð­asta árs og því að lífaldur sjóðs­fé­laga er að hækka.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er ásamt Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins. Greið­andi sjóð­fé­lagar voru um 50 þús­und á síð­asta ári og námu iðgjalda­greiðslur til sjóðs­ins um 25 millj­örðum króna. Eignir sjóðs­ins nema nú um 602 millj­örðum króna.

Um 22 pró­sent af eignum sjóðs­ins, 132,4 millj­arðar króna, eru bundnar í inn­lendum hluta­bréfum. Heild­ar­virði skráðra félaga í Kauphöll Íslands er oft­ast nær um eða yfir eitt þús­und millj­arðar króna um þessar mundir og því ljóst að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er stór leik­andi á því sviði. Sjóð­ur­inn er á meðal stærstu hlut­hafa í Eik fast­eigna­fé­lagi, Reitum, Símanum, HB Granda, N1, TM, VÍS, Fjar­skiptum (Vodafone á Íslandi), Eimskip, Reginn, Högum, Nýherja, Icelandair og Marel. Eigna­flokk­ur­inn hefur gefið sjóðnum mjög góða ávöxtun á und­an­förnum árum, þ.e. þangað til í fyrra þegar raun­á­vöxtun var nei­kvæð.

Mesta verð­fallið hefur verið á hluta­bréfum í Icelandair. Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna er stærsti ein­staki hlut­hafi félags­ins með14,7 pró­sent hlut. Mark­aðsvirði bréfa í Icelandair hefur lækkað um tæp­lega 110 millj­arða króna frá því í apríl í fyrra, og er í dag um 83 millj­arðar króna. Þegar mark­aðsvirði Icelandair lækk­aði um 24 pró­sent á einum degi, eftir að félagið sendi frá sér afkomu­við­vörun, sendi Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna frá sér til­kynn­ingu. Í henni var bent á að meiri­hluti þess hluta­fjár sem sjóð­ur­inn á í Icelandair hafi verið keyptur árið 2010 á geng­inu 2,5, en það er nú 16,8 krónur á hlut.

Vegið kaup­gengi allra hluta í Icelandair sé 3,7 og miðað við það sé virði hluta­bréf­anna enn meira en fjór­falt kaup­virði þeirra. „Þegar tekið hefur verið til­lit til 1.523 mkr arð­greiðslna er raun­á­vöxtun þess­arar fjár­fest­ingar frá 2010 til dags­ins í dag 32,34 pró­sent, sem telst mjög góð afkom­a.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár