Öllu tjaldað til hjá Justin Timberlake - Stjörnum prýddar auglýsingar

Tónlistar­maðurinn Justin Timberlake var með hálf­sleiks­atriði í leiknum um Ofur­skálina í NFL í Banda­ríkjunum í nótt. Auglýs­ing­arnar vöktu athygli, eins og svo oft áður.

Philadelphia Eagles lagði New England Patriots í leiknum um Ofur­skálina í nótt, 41 - 33. Spennan var mikil fram á síðustu stundu, en Eagles hafði þó yfir­höndina í stigum lengst af.

Justin Timberlake var með hálf­sleik­atriðið í leiknum og er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til í því. Hápunkturinn á flutningi hans var þegar hann söng lagið I Would Die 4 U, á meðan tónlistar­maðurinn Prince birtist á blaktandi tjaldi syngjandi með.

Prince lést 21. apríl 2016 en hann fæddist í Minnesota, þar sem leikurinn fór fram að þessu sinni. Justin vildi með þessu votta Prince virðingu sína en þeir voru miklir vinir, og hefur Justin lýst honum sem sínum mesta áhrifa­valdi.

Prince var með eitt umtalaðasta og besta atriði í sögu Ofur­skálarinnar, þegar hann var með atriðið árið 2007, í mígandi rigningu og þrumu­veðri í Florida. Hann lauk atriði sínu á epísku gítar­sólói í laginu Purple Rain, þar sem hann birtist með gítarinn á fjólubláu tjaldi, ekki ósvipuðu því sem áhorf­endur fengu að sjá hjá Justin Timberlake.

Auglýsingarnar voru af dýrari gerðinni að þessu sinni, og en auglýsingar í kringum leikinn eru dýrasti auglýsinga­tíminn í sjónvarpi í Banda­ríkjunum, ár hvert. Þær auglýsingar sem vöktu einna mesta athygli í aðdrag­anda leiksins voru auglýsingar frá Doritos og Amazon. Hjá þeim síðarnefndu birtust þekkar stjörnur í auglýsingu þar sem Alexa, varan frá Amazon, átti að hafa misst röddina.

Anthony Hopkins, Gordon Ramsay og Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon, komu meðal annars fram í auglýsingunni.

Hópur Íslendinga birtist einnig í auglýsinga­hléi leiksins. Í þeirri auglýsingu var verið að auglýsa Dodge Ram bifreið, og var Magnús Ver Magnússon, kraft­lyftinga­maður, þar fremstur í flokki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár