Beiðni um að fá minnisblað afhent synjað

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur synjað beiðni Kjarnans um að fá minn­is­blað afhent sem lagt var fram á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í síð­ustu viku varð­andi komu flótta­manna frá Afganistan.

Von er á um 30 Afgönum til Íslands á næstu vikum en um er að ræða ein­stak­linga sem falla undir þá hópa sem íslensk stjórn­völd ákváðu að aðstoða sér­stak­lega. Þá hefur borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins verið í sam­skiptum við um 25 til 30 manns til við­bótar en óvíst er hvenær sá hópur kemst til lands­ins.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans varð­andi inni­hald minn­is­blaðs sem lagt var fram á fundi rík­is­stjórn­ar­innar þann 19. októ­ber. Kjarninn óskaði eftir að fá afhent minn­is­blaðið sem lagt var fram á fund­inum en í svari ráðu­neyt­is­ins segir að gögn sem tekin eru saman fyrir rík­is­stjórn­ar­fundi séu und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti almenn­ings og var beiðni um að fá minn­is­blaðið afhent synjað. Bent er á í svar­inu að heim­ilt sé að kæra synjun á afhend­ingu minn­is­blaðs­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Fram kemur í svari ráðu­neyt­is­ins að staðan í Afganistan sé mjög flókin. „Hefð­bundnar flug­sam­göngur liggja niðri og er því erfitt að flytja fólk úr landi. Íslensk stjórn­völd þurfa því að reiða sig á sam­starf við aðra um að koma fólki frá Afganistan.“

Hafa aðstoðað 33 einstaklinga

Þann 24. ágúst féllst rík­is­stjórn Íslands á til­lögur flótta­manna­nefndar að taka á móti allt að 120 manns frá Afganistan í kjöl­far valda­töku Talí­bana. Í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að borg­ara­þjón­ustan hafi aðstoðað 33 ein­stak­linga sem voru staddir Afganistan rétt áður en lokað var fyrir flug­sam­göngur við að kom­ast til lands­ins. Í hópnum hafi bæði verið ein­stak­lingar sem falla undir þá hópa sem rík­is­stjórnin ákvað að aðstoða sér­stak­lega sem og ein­stak­lingar sem voru með dval­ar­leyfi hér­lendis eða íslenskir rík­is­borg­arar.

Á næst­unni sé von á um það bil 30 Afgönum til lands­ins sem falla undir þá hópa sem íslensk stjórn­völd ákváðu að aðstoða sér­stak­lega.

„Stjórn­völd hafa verið í sam­skiptum við bæði Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu Þjóðanna, Alþjóða­fólks­flutn­inga­stofn­un­ina (IOM) og önnur Norð­ur­lönd varð­andi útfærslu á verk­efn­inu. Staðan í Afganistan er mjög flókin, hefð­bundnar flug­sam­göngur liggja niðri og því erfitt að flytja fólk úr landi. Áfram­hald­andi góð sam­vinna við þessar alþjóða­stofn­anir eru því lyk­ill að því að ná sem flestum af hópnum til lands­ins.

Félags- og barna­mála­ráð­herra hefur beint þeim til­mælum til flótta­manna­nefndar að hún haldi störfum sínum áfram í sam­ræmi við ákvörðun rík­is­stjórnar Íslands og að nefndin eigi að leita allra leiða til þess að koma fjöl­skyld­unum til lands­ins við sem allra fyrst,“ segir í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár