Tökum á móti hlutfallslega færri flóttamönnum en Bandaríkin og Kanada

Rík­is­stjórn Íslands hefur sam­þykkt að taka á móti 120 flótta­mönnum frá Afganistan vegna yfir­töku Talibana þar í landi. Er það mikið eða lítið miðað við þann fjölda sem önnur lönd hafa sagst ætla að taka á móti?

Íslenska rík­is­stjórnin hyggst taka á móti fleiri afgönskum flótta­mönnum en Bretar, en færri flótta­mönnum en Banda­ríkja­menn og Kana­da­búar, ef tekið er til­lit til mann­fjölda.

Samkvæmt nýlegri umfjöllun Newsweek um málið hefur banda­ríska rík­is­stjórnin sam­þykkt að taka á móti allt að 125 þús­und flótta­mönnum frá Afganistan fyrir lok næsta árs. Breska rík­is­stjórnin hefur aftur á móti sagst ætla að taka á móti 20 þús­und flótta­mönnum þaðan, en búast má við að 5 þús­und þeirra muni koma til lands­ins fyrir lok þessa árs.

Marco Mendicino, inn­flytj­enda­mála­ráð­herra Kanada, til­kynnti svo á Twitter fyrir tæpum tveimur vikum síðan að rík­is­stjórnin þar í landi ætli að taka á móti 20 þús­und afgönskum flótta­mönnum. Til sam­an­burðar sam­þykkti íslenska rík­is­stjórnin að taka á móti 120 afgönskum flótta­mönnum vegna ástands­ins þar í landi í síð­ustu viku.

Samkvæmt þessum yfir­lýs­ingum má því búast við að rúm­lega þremur afgönskum flótta­mönnum verði gefið dval­ar­leyfi hér á landi fyrir hverja 10 þús­und íbúa, nánar til­tekið 3,2. Þetta er nokkuð hærra en í Bret­landi, þar sem búast má við færri en þremur afgönskum flótta­mönnum á hverja 10 þús­und íbúa, en lægra en í Banda­ríkj­unum, sem hyggj­ast ætla að taka á móti 3,6 afgönskum flótta­mönnum á hverja 10 þús­und íbúa.

Höfum tekið á móti færri Afgönum en hin Norðurlöndin

Samkvæmt tölum frá flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNHCR) bjuggu rúm­lega 120 afganskir flótta­menn hér á landi í fyrra, eða rúm­lega þrír fyrir hverja 10 þús­und íbúa. Þetta er lægsta hlut­fall afganskra flótta­manna á öllum Norð­ur­löndum, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Til sam­an­burðar hafa dönsk stjórn­völd tekið á móti fjórum afgönskum flótta­mönnum á hverja 10 þús­und íbúa, en Finnar hafa tekið á móti sex og Norðmenn sjö. Lang­hæsta hlut­fallið er þó í Svíþjóð, en þar bjuggu tæp­lega 30 þús­und afganskir flótta­menn í fyrra. Þetta jafn­gildir 29 flótta­mönnum á hverja tíu þús­und íbúa.

Aftur á móti hafa Bretar, Banda­ríkja­menn og Kanada­menn tekið á móti mjög fáum afgönskum flótta­mönnum hingað til. Samkvæmt sömu tölum voru þeir ein­ungis um 1.600 tals­ins í Banda­ríkj­unum í fyrra, sem jafn­gildir 0,05 á hverja 10 þús­und íbúa. Í Kanada voru 0,6 afganskir flótta­menn á hverja 10 þús­und íbúa, en í Bret­landi nam sam­svar­andi hlut­fall 1,3.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár