Maduro vann kosningar í Venesúela þrátt fyrir efnahagshrun

Helsti andstæðingur hans í kosningunum vill endurkjör.

Forseti Venesúela, Nicolás Maduro, vann var sigurveg­arinn í forseta­kosningunum í landinu, samkvæmt útgöngu­spám. Kosið var í gær, en kosninga­þátttaka var slök, um 46 prósent. 

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC var Maduro með 67,7 prósent fylgi þegar búið var að telja 90 prósent atkvæða, en helsti keppinautur hans, Henri Falcón, var með rúmlega 21 prósent.

Óhætt er að segja að Maduro, sem er 55 ára gamall, hafi verið mikið í sviðs­ljósinu undan­farin ár, enda hefur efnahagur Venesúela hrunið og hagstjórn stjórn­valda verið í molum.

Samkvæmt umfjöllun Reuters hafa stjórn­völd í Venesúela ekki birt opinberar hagtölur í langan tíma, en síðustu opinberu tölur um atvinnu­leysi birtust fyrir tveimur árum. Þá mældist það 7,3 prósent, en talið er að atvinnu­leysi sé nú mælt í tugum prósenta.

Þá hrundi hagkerfi landsins niður um 14 prósent í lands­framleiðslu í fyrra, samkvæmt tölum Alþjóða­bankans, sem hefur lýst efnahags­hruni Venesúela sem sjaldgæfum atburði, vegna þess hve hratt hefur fjarað undan viðkvæmu hagkerfi landsins.

Í Venesúela búa tæplega 32 milljónir manna, eða sem nemur vel rúmlega íbúa­fjölda allra Norður­landanna, samanlagt, en þar búa um 27 milljónir manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár