Íbúðum á „Reit 13“ fækkað um tíu og samþykkt að auglýsa deiliskipulag

Skipulagsráð Kópa­vogsbæjar samþykkti í upphafi mánaðarins að setja í auglýsingu deili­skipulags­tillögu að svokölluðum „Reit 13“ á Kárnesi. Búið er að fækka fyrir­huguðum íbúðum á reitnum um tíu frá vinnslu­tillögu sem kynntar var fyrr á árinu.

Skipulagsráð Kópa­vogsbæjar samþykkti í upphafi mánaðar að láta auglýsa deili­skipulags­tillögu að svokölluðum „Reit 13“ á Kárnesi. Kjarninn fjallaði nýlega um vinnslu­tillögu að skipulagi reitsins og athuga­semdir sem um hana bárust, en nú er málið þar statt að nokkrar breytingar hafa verið gerðar frá vinnslu­tillögunni.

Helstu breytingarnar sem gerðar hafa verið eru þær að byggingar­magnið hefur verið minnkað úr 26.675 fermetrum niður í 24.995 fermetra og íbúðum fækkað úr 160 í 150. Land­fylling í tengslum við reitinn verður minni, eða 730 fermetrar í stað 1.700 eins og fyrir­hugað var í vinnslu­tillögu.

Byggðin hefur verið lækkuð frá því sem lagt var upp með. Eitt húsanna átti að vera með inndregna 5. hæð en hún er „farin“ og 4. hæðin á því húsi verður gerð inndregin. Þá hefur samfelldri húsa­lengju sem fyrir­huguð var við Þinghóls­braut verið skipt upp í tvö hús, eða tvo „byggingar­massa“ eins og þeir eru kallaðir í yfirliti yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið.

Nú þegar ákveðið hefur verið að auglýsa skipulags­tillöguna, munu íbúar og aðrir hagsmuna­aðilar aftur hafa tök á að senda inn athuga­semdir vegna skipulagsins, en yfir hundrað athuga­semdir bárust við vinnslu­tillöguna.

Þeim verður ekki svarað með formlegum hætti af hálfu skipulags­yfirvalda, heldur mun nú hefjast, að fenginni formlegri samþykkt bæjar­stjórnar Kópavogs, annað auglýsingar­ferli þar sem íbúar geta komið athuga­semdum á framfæri.

Ekki allir á einu máli í skipulagsráði

Rétt eins og þegar ákveðið var í skipulags­ráðinu í Kópavogi um miðjan mars að láta vinnslu­tillöguna og athuga­semdir sem við hana bárust verða grundvöll að áfram­haldandi vinnu við gerð deili­skipulags­tillögu, sem nú er komin fram, voru ekki allir bæjar­fulltrúar á einu máli um hvernig ætti að standa að fram­haldinu.

Þau Sigur­björg Erla Egils­dóttir fulltrúi Pírata og Einar Örn Þorvarðarson fulltrúi BF/Viðreisnar sögðu að kallað hefði verið eftir auknu samráði í innsendum athuga­semdum eftir kynningu vinnslu­tillögunnar.

„Meðal annars var óskað eftir kynningu á fyrir­hugaðri uppbyggingu og heildar­byggingar­magni á stærra svæði Kársness, auk stefnu um hönnun og arkitektúr á svæðinu. Samþykkt skipulags­lýsing gerir ráð fyrir 18.700 fermetrum en í deili­skipulags­tillögunni er tæplega 34% aukning á bygginga­magni. Af þessum sökum telja undir­rituð mikilvægt að staldra við og fara í meira samráð við íbúa og hagsmuna­aðila á svæðinu áður en lengra er haldið,“ sögðu þau Sigur­björg Erla og Einar Örn í sameiginlegri bókun sinni um málið.

Í bókun fulltrúa meirihluta Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks, þeirra Hjördísar Johnson, Birkis Jóns Jónssonar, Kristins D. Gissurar­sonar og Sigríðar Kristjáns­dóttur, sagði á móti að tekið hefði verið tillit til fram­kominna athugasemda og „íbúðum fækkað, hæðir húsa lækkaðar, byggð aðlöguð enn frekar að aðliggjandi byggð og grænum svæðum fjölgað.“

„Rétt er að árétta að nú hefst lögbundið kynningar­ferli þar sem íbúum gefst enn frekari kostur á að koma að athuga­semdum og ábendingum,“ sagði ennfremur í bókun fulltrúa meirihluta­flokkanna í Kópavogi, sem áður höfðu einnig tekið undir bókun Berg­ljótar Kristins­dóttur, fulltrúa Samfylkingar, um að nota ætti „öll ráð sem tiltæk eru til að íbúar nái að kynna sér tillöguna og þær breytingar sem gerðar hafa verið.“

Bergljót hafði lagt til að boðið yrði upp á þrívíddar­módel, sem auðvelt yrði fyrir íbúa „að mynda sér skoðun á hæð bygginga og legu þeirra í landinu. Íbúar eru ekki sérfræðingar í lestri skipulags­tillagna og þurfa gögn við hæfi til að meta raunhæfni tillög­unnar.

Bæjarfulltrúi fékk sex blaðsíðna bréf frá verktaka

Reiturinn hefur verið nokkuð hitamál í bæjar­stjórnar­pólitíkinni í Kópavogi síðustu misseri, eins og raunar fleiri þróunar­reitir í bænum. Þess má geta að sérstakt framboð íbúa­samtakanna Vinir Kópavogs, sem stofnuð voru vegna andstöðu við ýmis skipulags­áform í bænum, mun bjóða fram til kosninga í bænum í vor.

Theódóra S. Þorsteins­dóttir bæjar­fulltrúi BF/Viðreisnar hefur gagnrýnt fyrir­huguð uppbyggingar­áform á þessum tiltekna reit á Kárnesinu og meðal annars sagði frá því í umfjöllun Kópa­vogs­blaðsins um reitinn í upphafi mánaðar að undir lok síðasta árs hefði hún fengið sent bréf frá fulltrúm fyrir­tækisins Vinabyggð, sem er einn lóðarhafa á reitnum á Kárnesi.

Lýsti hún því bréfi sem „skrið­tæklingu inn í stjórn­sýslu bæjarins“ sem hefði verið ætlað að draga úr trúverðug­leika hennar. „Af bréfi þeirra má skilja að ég hafi verið illa upplýst í umræðu minni um reit 13. Sann­leikurinn er þó sá að ég lýsti því yfir að ég væri ósammála vinnu­brögðunum og tillög­unni sjálfri enda teygja menn sig mjög langt í að auka byggingar­magn, á lóð sem þeir hafa ekki sjálfdæmi um að skipulegga, þvert á vilja íbúanna. Þá hjóla menn í manninn, reyna að skrifa söguna upp á nýtt og breyta leik­reglunum,“ hafði Kópa­vogsblaðið eftir Theódóru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár