Of mikið byggingarmagn – eða hreinlega of lítið?

Skiptar skoðanir koma fram í þeim rúmlega hundrað athuga­semdum sem bárust skipulags­yfirvöldum í Kópavogi um vinnslu­tillögu að deili­skipulagi svokallaðs reits 13, yst á Kársnesi sunnan­verðu.

Þetta er framtíðarsýn lóðarhafa á svokölluðum reit 13 á Kárnesi. 160 íbúðir, þar sem í dag er gamalt atvinnuhúsnæði.
Þetta er fram­tíð­ar­sýn lóð­ar­hafa á svoköll­uðum reit 13 á Kárnesi. 160 íbúðir, þar sem í dag er gam­alt atvinnu­hús­næði. Mynd: Atelier arkitektar

Skipulagsráð Kópa­vogsbæjar samþykkti á fundi sínum síðasta mánudag að vinnslu­tillaga að skipulagi á svokölluðum reit 13 á þróunar­svæði á Kársnesi, sem nær til lóða við Bakka­braut 2 og 4, Bryggjuvör 1-3 og Þinghóls­braut 77 og 79, auk fram­kominna athugasemda frá íbúum, verði grund­völlur að áfram­haldandi vinnu við gerð deili­skipulags­tillögu fyrir reitinn.

Vinnslu­tillagan, sem unnin var af Atelier arkitektum fyrir hönd lóðarhafa og kynnt fyrir íbúum í febrúar­mánuði, felur í sér að allt að 160 íbúðir verði byggðar á þessum reit í húsum sem verði 2-5 hæðir. Byggingar­magnið á svæðinu er áætlað alls 26.765 fermetrar ofan- og neðanjarðar. Gert er ráð fyrir 0,75-1 bílastæði á hverja íbúð og að um 90 prósent bíla­stæðanna verði neðanjarðar.

Tveir fulltrúar af sjö töldu rétt að staldra við

Ekki var einhugur í skipulags­ráðinu um fram­haldið tilögunnar, en atkvæði féllu 5-2. Í bókun formanns skipulags­ráðsins, Helgu Hauks­dóttur bæjar­fulltrúa Fram­sóknar, sagði að mikilvægt væri að tillagan yrði þróuð á þann hátt að ríkt tillit yrði tekið til fram­kominna athugasemda sem snerust um „of mikið byggingar­magn, lækkun hæða, útsýnis­skerðingu og skugga­myndun“ og að leggja þyrfti áherslu á góð almanna­rými, ekki síst við strand­lengjuna.

Bergljót Kristins­dóttir fulltrúi Samfylkingar í ráðinu greiddi atkvæði með tillög­unni en óskaði eftir því að gert yrði „físískt“ þrívídda­módel og haft til sýnis fyrir almenning þegar tillaga um deiiskipulag yrði tilbúin. „Slík módel henta mjög vel til að gera sér grein fyrir raun­útliti byggingar­reits," sagði í bókun Berg­ljótar.

Bæjar­fulltrúarnir tveir sem greiddu atkvæði gegn því að áfram yrði unnið með tillöguna á þessu stigi máls voru þau Sigur­björg Erla Egils­dóttir fulltrúi Pírata og Einar Örn Þorvarðarson fulltrúi BF/Viðreisnar. Þau sögðu íbúa kalla eftir meira samráði um skipulagið.

„Meðal annars er óskað eftir kynningu á fyrir­hugaðri uppbyggingu og heildar­byggingar­magni á stærra svæði Kársness, auk stefnu um hönnun og arkitektúr á svæðinu,“ segir í bókun Sigur­bjargar og Einars og bent á að samþykkt skipulags­lýsing reitisins geri ráð fyrir 18.700 fm byggingar­magni á reitnum en vinnslu­tillagan fjalli um tæplega 43 prósent aukingu.

„Af þessum sökum telja undir­rituð mikilvægt að staldra við og fara í meira samráð við íbúa og hagsmuna­aðila á svæðinu áður en lengra er haldið," segja þau Sigur­björg og Einar.

Tillagan gagnrýnd af fjölda íbúa

Alls 101 athugasemd eða ábending barst til Kópa­vogsbæjar vegna þessarar vinnslu­tillögu og voru umsagnirnar frá íbúum og öðrum hagsmuna­aðilum af ýmsum meiði. Í þeim má finna allt frá eindreginni mótstöðu yfir í stuðning við tillöguna og reyndar jafnvel gagnrýni þess efnis að ekki væri nægilega langt í tillög­unni gengið hvað varðar byggingar­magn og þéttleika íbúða.

„Ég mótmæli því að svona mörg hús verði byggð á svæði 13,“ sagði einn nágranni reitsins en annar sagði að ef einhversstaðar ætti að þétta byggð væri það „einmitt á þessu svæði vegna fyrir­sjáanlegra fjár­festinga í samgöngu­innviðum á svæðinu“ en reiturinn liggur í grennd við legu fyrir­hugaða legu Borgar­línu um Kársnesið.

Það er þó óhætt að segja að fleiri athuga­semdir hafi verið neikvæðar en jákvæðar, en margar þeirra neikvæðu voru samhljóða eða svo gott sem samhljóða.

Í þeirri umsögn sem margir sendu inn segir meðal annars að byggðin sem teiknuð hafi verið upp sé allt of þétt og há, útsýnis­skerðing og skugga­myndun sé „langt umfram þau mörk sem eru boðleg íbúum“, nýtingar­hlutfall reitsins sé „úr öllu samhengi við aðliggjandi byggð“ og að þröngar íbúagötur, t.d. Þinghóls­braut og Sunnu­braut, anni illa núverandi bíla­umferð og geti „síst tekið við meiri umferð án aukinnar slysa­hættu“. Þá segir einnig að útsýni til sjávar hverfi „úr öllum áttum og aðgengi að sjó skerðist þannig að ekki verður við unað.“

„Allt það sem er forsenda bíllaus lífsstíls og mannlífs skortir í hverfinu, hverfis­verslun, leikskóli, skóli, dægradvöl fyrir unga sem aldna, veitingahús, kaffihús, útivist og frístund. Samgöngumál eru nú þegar í uppnámi, ekki síst fyrir hjólandi og gangandi umferð sem á samkvæmt tillögum að aukast. Nú þegar er skortur á bíla­stæðum,“ segir í þessari sömu athugasemd.

Of fáar íbúðir, segir fasteignasali

Ekki voru þó allir á því máli að tillagan gerði ráð fyrir of mikilli byggð eða of þéttri. „Það kemur mér í raun á óvart hvað verið er að byggja lítið af íbúðum á þessum flotta reit á einum besta stað í Kópavogi. Þarna hefði auðveldlega verið hægt að koma fyrir fleiri íbúðum og það er ekki endilega vilji Kópa­vogsbúa sem þarna vilja búa að einungis sé verið að taka tillit til nokkurra einbýlis­húsa í nágrenninu og hanna hverfið í kringum þeirra þarfir. Það þarf líka að hlusta á alla aðra sem langar að flytja á þennan flotta stað í Kópavogi við sjóinn þar sem er mikil veðursæld og flott útsýni nálægt útivistar­perlum,“ segir í athugasemd sem íbúi í Kópavogi, sem starfar sem fasteigna­sali, sendi inn.

Fasteigna­sali þessi sagðist þykjast hafa vissu fyrir því að eftir­spurn eftir íbúðum á þessum svæði yrði mikil. „Ég er búinn að sýna þessa tillögu mörgum af mínum viðskipta­vinum sem eru mjög hrifnir af tillög­unni og hafa sýnt því áhuga að búa þarna þegar þessar íbúðir verða byggðar,“ segir í umsögn hans.

Lóðarhafi segir kominn tíma til að standa við heildarmyndina af Kársnesinu

Einar Steindórsson, framkvæmda­stjóri Vina­byggðar ehf., sem er einn lóðarhafa á reit 13, leggur orð í belg með bréfi til skipulags­yfirvalda. Hann segist hafa fylgst með opnum kynningar­fundi bæjar­yfirvalda í Kópavogi í febrúar og segir það sitt mat að stærstur hluti þeirrar gagnrýni sem þar var fram sett hafi ekki beinst að vinnslu­tillögunni sem slíkri, heldur sé afmarkaður hópur fólks óánægður með hvernig haldið hafi verið á skipulag á Kársnesi í víðara samhengi.

„Almenn skoðun þessa hóps er að ekki sé komið til móts við vilja og þarfir íbúa á Kárnesinu og að skortur sé á skipulagi og heildarsýn fyrir hverfið. Staðar­kostir séu illa nýttir, þéttingar­stefnan yfir­gengileg og samráð við íbúa sé marklaust og blekkingar­leikur skipulags­yfirvalda,“ skrifar Einar, en bætir svo við að það rétta sé að íbúar hafi fengið að taka þátt í að móta og undirbúa grunn­forsendur fyrir skipulag á Kársnesinu. Reitur 13 sé í fullu samræmi við skipulags­lýsingu sem unnin var með íbúum, hvort sem það varðaði fjölda íbúða eða byggingar­magn.

Einar segir að tilbúið bréf hafi verið sett inn á hóp íbúa á Kárnesi á Facebook og fólk hafi verið hvatt til að afrita það og senda inn til skipulags­yfirvalda að mótmæla vinnslu­tillögunni. „Það má leiða að líkum að þarna muni einhverjir íbúar senda bréf í blindni án neinnar skoðunar á tillög­unni sjálfri og kostum hennar. Það er ekki vænlegt fyrir heiðar­lega og markvissa umsögn,“ segir Einar, sem svo svarar nokkrum af þeim athuga­semdum sem voru settar fram af íbúum í því skeyti sem margir sendu inn samhljóða.

Gagnrýni á hæð og þéttleika byggðarinnar svarar Einar með því að benda á að byggðin sé lágreist, á 2-3 hæðum á lang­stærstum hluta reitsins en hækki í fjórar hæðir með innfelldri fimmtu hæð nyrst á reitnum, upp við legu Borgar­línu. Einnig segist hann telja að útsýnis­skerðing sé mjög lítil og að hönnuður hafi tekið mikið tillit til þeirra þátta.

„Það er auðvitað ekki rétt að útsýni til sjávar skerðist úr öllum áttum þó að útsýni takmarkist frá einstaka húsum,“ skrifar Einar einnig.

Hann segir þó umræðu um heildar­mynd Kárnessins eiga rétt á sér, þó að fyrir vikið hafi ekki náðst að eiga sér stað markviss umræða um vinnslu­tillöguna.

Segir hann að töfin sem orðið hefur á deili­skipulagi reits 13 sé „með ólíkindum“ og að tillagan hafi fengið mikla og ítarlega kynningu ásamt því sem töluvert samráð hafi átt sér stað.

„Það er kominn tími á að skipulags­yfirvöld standi við þá heildar­mynd af Kársnesinu sem hefur verið kynnt og setji umrædda tillögu í lögformlegt deili­skipulags­ferli,“ skrifar Einar.

Og í slíkt ferli var tillög­unni einmitt vísað, síðasta mánudag, sem áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár