Mömmupitsa og pakkalasagne skipa sess í hjartanu

Rapp­ar­inn Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti, er á loka­sprett­inum með nýja plötu og nýjan veit­inga­vagn. Hann nefnir hér fimm rétti sem hafa haft mikil áhrif á líf hans.

Síðustu mán­uði hefur Gauti ásamt Rakel Þór­halls­dóttur og Jóhanni Guð­laugs­syni unnið hörðum höndum að því að gera upp veit­inga­stað­inn Haga­vagn­inn í Vesturbæ þar sem Gauti seg­ist vilja bjóða fólki í hverf­inu upp á „basic burger“. Þeir réttir sem hafa skipað mestan sess í lífi hans væri flesta hægt að kenna við skyndi­bita­stíl.

1
Mömmupitsa

„Fyrsti rétt­ur­inn er bara solid mömmupitsa sem mamma gerði frá grunni með engu kjaftæði. Þetta er þessi fer­kant­aða pitsa með rosa­lega miklu brauði og venju­legum sam­loku­osti, og áleggið er bara það sem er til í ísskápnum það kvöld. Hún var í miklu upp­á­haldi þegar maður var lít­ill, en kannski var það líka teng­ingin við hlýj­una sem fylgdi því að mamma var að elda fyrir mann. Á hverju ári þegar ég á afmæli fæ ég mömmupitsu. Hún býður mér í mat og ég fæ að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Líf mitt í fimm réttum

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár