Sigmundur: Undarlegt ef Landsbankinn ætlar að byggja höfuðstöðvar við Hörpu gegn vilja eigenda

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra er mótfallinn því að Lands­bankinn reisi nýjar höfuð­stöðvar á lóð sem bankinn á við Hörpu. Sigmundur segir að ríkis­bankinn ætti að vera leiðandi í því að bæta kjör viðskipta­vina sinna. Þetta kom fram í viðtali við Sigmund í kvöld­fréttum RÚV.

Sigmundur sagði í fyrsta lagi að hann gerði athugasemd við skipulags­málin, gert sé ráð fyrir allt of miklu byggingar­magni á milli Hörpu og gamla bæjarins.

Þá gagnrýnir hann forgangs­röðun ríkis­bankans sem hann telur að ætti að vera leiðandi í því að bæta kjör viðskipta­vina. „Og í þriðja lagi þá finnst mér það undarlegt ef banki sem er í almanna­eigu, ætlar að fara gegn því sem virðist vera augljós vilji eigendanna - almennings og fulltrúa hans.“

Hann segir marga aðra staði eða jafnvel tilbúin hús geta gegnt hlutverki höfuð­stöðva bankans. „Menn hafa til að mynda nefnt tollhúsið sem ég held að gæti nýst bankanum mjög vel.“

Sigmundur tekur þannig undir fleiri gagnrýnis­raddir, en meðal þeirra sem hafa gagnrýnt áform Lands­bankans eru samflokksmenn Sigmundar, þau Vigdís Hauks­dóttir og Frosti Sigurjónsson, og Elín Hirst og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmenn Sjálfstæðis­flokksins. Þá hefur bæjarráð Vestmanna­eyja kallað eftir hluthafa­fundi til að ræða málið og bæjar­stjórinn í Kópavogi hefur boðið fram húsnæði í bænum. Stjórn­endur bankans segja hins vegar að bankinn sé miðborgar­fyrirtæki og að með nýjum höfuð­stöðvum geti bankinn sparað 700 milljónir á ári og borgað upp framkvæmdina á tíu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár