Farage óskar Íslendingum til hamingju

Leiðtogar yst til hægri í Bretlandi og Frakk­landi fagna ákvörðun íslensku þjóðarinnar um að hafna aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið.

Leiðtogar yst til hægri í Bretlandi og Frakk­landi fagna niður­stöðunni í þjóðar­atkvæða­greiðslu um hvort taka ætti aftur upp aðildar­viðræður Íslands við Evrópu­sambandið, þar sem 52,8% lands­manna höfnuðu viðræðum.

„Til hamingju, Ísland, með að hafa kosið að halda sjálf­stæði ykkar,“ skrifaði Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, á samfélags­miðlinum X, áður Twitter.

„Á sama tíma og sumir þrýsta á um aukna sambands­ríkja­væðingu og framsal full­veldis til framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins minnir þessi atkvæða­greiðsla okkur á að önnur Evrópa er möguleg — Evrópa frjálsra og fullvalda þjóða sem vinna saman af fúsum og frjálsum vilja að sameiginlegum hagsmuna­málum,“ skrifaði Marine Le Pen frá Frakk­landi á sama miðli.

Marine Le PenLeiðtogi Þjóð­fylk­ing­ar­innar í Frakk­landi er efst í skoð­ana­könn­unum fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar í land­inu næsta vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Íslands ógæfu verður allt að vopni
    0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Nei þetta er einmitt til vitnis um að Ísland hefur gæfu sína í eigin höndum.
      -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár