Þingflokkur Pírata vill kasta D’Hondt-aðferðinni út á hafsauga

Píratar vilja breyta því hvernig þingsæti eru reiknuð út í kjölfar kosninga. Þing­flokkurinn telur núverandi fyrir­komulag hygla stærri flokkum umfram þá smærri. Níu flokkar væru á þingi í dag ef stuðst hefði verið við aðferð Pírata eftir síðustu kosningar.

Björn Leví Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Björn Leví Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Pírata hafa lagt fram frumvarp á Alþingi til breytinga á kosninga­lögum, sem ætlað er að koma í veg fyrir að við úthlutun þingsæta sé fulltrúum skipt ójafnt á milli flokka. Píratar segja að hin svokallaða D’Hondt-framkvæmd við úthlutun þingsæta valdi þessu, í samspili við 5 prósenta atkvæða­þröskuldinn sem flokkar þurfa að klífa til að fá jöfnunar­mönnum úthlutað. Vanda­málið hafi ágerst á síðari árum með fjölgun stjórn­málaflokka sem eru í framboði til Alþingis.

Í frumvarpi Pírata er lögð til breyting á því hvernig jöfnunar­sætum er úthlutað, sem felst í því að ekki verði ákveðið fyrir fram hversu mörg jöfnunar­sætin eru, heldur ráðist það af því hversu mörgum jöfnunar­sætum þurfi að úthluta hverju sinni, þegar ljóst er hvað kemur upp úr kjör­kössunum.

Sósíalistar hefðu náð inn á þing

Í dæmi sem tekið er af niður­stöðum kosninganna á síðasta ári, með úthlutunar­reglum Pírata, hefði 58 kjördæma­sætum verið úthlutað og fimm jöfnunar­sætum. Ef stuðst hefði verið við þá úthlutun sem Píratar leggja til hefði Sósíalista­flokkur Íslands orðið níundi flokkurinn á þingi, með tvo þingmenn, en ákvæði stjórnar­skrár um 5 prósent þröskuldinn kveða á um að jöfnunar­sæti sem hefði átt að falla flokknum í skaut samkvæmt tillögðum úthlutunar­reglum Pírata megi ekki veita flokknum. Það jöfnunar­sæti hefði þannig færst til Miðflokksins.

Úthlutunar­aðferð Píratar er útskýrð þannig að fyrst sé fundið hversu mörgum þingsætum hver flokkur eigi rétt á í heildina á landsvísu. Það sé gert með einföldum hlutfalls­reikningi þar sem atkvæða­hlutfall og þingsæta­hlutfall er lagt að jöfnu yfir allt landið. Svo skal hlutfall hvers flokks í þingsætum námundað niður, og samtala þeirra vera úthlutuð þingsæti. Að því loknu skuli fundin samtala þeirra brota sem námunduð voru frá þingsætunum, sem væri þá fjöldi jöfnunar­sæta.

„Til glöggvunar má taka dæmi um framboð sem fær 10,2% atkvæða á landsvísu, og ætti þá 10,2% þingsæta samkvæmt hlutfalls­reikningi. 10,2% þingsæta eru 6,426 þingsæti. Í því tilfelli er einfald­lega sagt að það framboð fái 6 þingsæti og 0,426 jöfnunar­sæti verði þannig afgangs. Þegar sambærilegri útdeilingu er lokið fyrir öll framboð þá er einhver fjöldi þingsæta eftir sem framboðin eiga mismikið tilkall til. Eitt framboð gæti verið með 5,5 þingsæti og annað 10,2 þingsæti. Eftir að þessi tvö framboð hafa fengið sín 5 þingsæti og 10 þingsæti, þá þarf að úthluta þeim sætum sem ganga af. Við úthlutun jöfnunar­sætanna er tekið tillit til þess hvaða framboð á mest tilkall til hvers jöfnunar­sætis,“ segir í útskýringum í frumvarpi Pírata.

Þingsætum úthlutað koll af kolli á milli kjördæma

Sú úthlutun þingsæta í kjördæmum sem Píratar sjá fyrir sér er einnig frábrugðin núverandi fyrir­komulagi, en samkvæmt fyrir­komulaginu sem þing­flokkurinn leggur til er sætum úthlutað yfir allt landið í staðinn fyrir að það sé gert í hverju kjördæmi fyrir sig.

„Flokkur með það atkvæða­hlutfall sem er hæst á landsvísu, fyrir alla flokka og öll kjördæmi, fær fyrst úthlutað þingsæti. Úthlutunin er ekki framkvæmd í hverju kjördæmi fyrir sig heldur koll af kolli, eftir því hvaða flokkur er með hæsta óúthlutaða hlutfall atkvæða. Taka má dæmi um flokk X, sem er með 5% atkvæða í kjördæmi A, 14% atkvæða í kjördæmi B og 4% atkvæða í kjördæmi C. Sá flokkur fengi fyrst úthlutað þingsæti í kjördæmi B. Þetta getur leitt til þess að öllum þingsætum kjördæmis hefur verið úthlutað þegar kemur að því að úthluta þingsætinu til flokks X í kjördæmi A. Í því tilfelli er því þingsæti úthlutað til næsta kjördæmis sem enn er laust þingsæti í fyrir flokk X sem ætti að fá úthlutuðu þingsæti þar,“ segir í greinar­gerð með frumvarpi Pírata.

Þingmenn flokksins segja núverandi fyrir­komulag við úthlutun þingsæta hygla stærri flokkum umfram þá sem eru smærri og búa þannig til lýðræðis­lega skekkju. „Þetta frumvarp lagar skekkjuna að einhverju leyti, en þó ekki fullkomlega. Það er enn mikill munur á milli kjördæma sem er sérstakt og stærra viðfangs­efni að lagfæra. Það krefst breytinga á fjölda kjördæma eða endur­skipulagningar á legu kjör­dæmanna,“ segir í greinar­gerð með frum­varpinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár