Boeing stöðvar framleiðslu 737 Max vélunum

Alþjóðleg kyrr­setning hefur verið fyrir hendi frá því í lok árs, en samtals létust 346 í tveimur flug­slysum sem rakin hafa verið til galla í Max vélunum.

Boeing, stærsti flugvéla- og loftfara­fram­leiðandi heims, hefur stöðvað fram­leiðslu á 737 Max vélunum. Þær hafa verið kyrr­settar frá því 28. mars, um allan heim, og því verið ónothæfar í farþega­flugi.

Eitt þeirra flug­félaga sem hafa orðið fyrir miklu tjóni er Icelandair, en í síðustu tilkynningu frá félaginu þar sem fjallað var um kyrr­setninguna kemur fram að félagið geri ráð fyrir að Max vélarnar komi til notkunar í mars. Ekki liggur fyrir enn hvenær kyrr­setningu verður aflétt, og er það meðal annars þess vegna sem fram­leiðslan hefur tíma­bundið verið stöðvuð.

Um 40 vélar hafa komið úr fram­leiðslu á mánuði, hjá Boeing, en þegar mest var voru þær 53. Boeing er stærsta útflutnings­fyrirtækja Banda­ríkjanna og eru starfs­menn fyrir­tækisins um 80 þúsund á Seattle svæðinu, þar sem hjartað í fram­leiðslu fyrir­tækisins hefur verið frá stofnun.

Ástæðan fyrir kyrr­setningunni eru flugslys í Indónesíu 29. október í fyrra og í Eþíópíu 13. mars, en í þeim létust allir um borð, samtals 346. Frum­niðurstöður rannsókna í löndunum fyrr­nefndu benda til þess að vélarnar hafi verið með gallað MCAS-kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, og því hafi þær togast til jarðar með fyrr­nefndu afleiðingum.

Fjölmargar athuga­semdir hafa einnig komið fram í rann­sóknum annarra á Boeing, þar á meðal hjá alríkis­lögreglunni FBI. Auk þess er Banda­ríkjaþing ennþá að rannsaka félagið og hvernig það stóð að upplýsinga­gjöf til bandarískra flugmála­yfirvalda og eftirlits­aðila. Í yfirheyrslum í þinginu hafa stjórn­endur Boeing verið harðlega gagn­rýndir fyrir að upplýsa ekki um galla í vélunum, og einnig að slaka á eftirliti með fram­leiðslunni.

Kyrr­setningin á Max vélunum hefur haft mikil áhrif víða um heim, ekki síst á Íslandi. Í Peninga­málum Seðla­banka Íslands sem komu út í nóvember, segir að samdráttur í ferða­þjónustu á árinu hafi ekki síst átt sér stað vegna kyrr­setningar á Max vélunum, sem hefur leitt til þess að Icelandair hefur þurft að draga úr sæta­framboði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár