„Þau brugðust dóttur minni í svo mörg ár“

Íslenskur maður í Kaupmanna­höfn segir sögu 16 ára dóttur sinnar sem glímir við hegðunar- og fíkni­vandamál. Félags­lega kerfið brást henni þegar hún var flutt á heimili þar sem brotið var á henni kynferðis­lega og svo annað þar sem hún gat auðveldlega nálgast vímuefni.

Á forsíðu Berlingske
Á for­síðu Berl­ingske Íslenski mað­ur­inn segir frá bar­áttu sinni við kerfið í dönsku dag­blaði. Mynd: Lindsay Martin / Unsplash

Íslenskur maður í Kaupmanna­höfn lýsir því hvernig félags­lega kerfið í borginni brást dóttur hans þegar hún var færð á milli þriggja heimila vegna hegðunar- og fíkni­vanda.

Þetta kemur fram í umfjöllun danska dagblaðsins Berlingske um röð mála þar sem félags­lega kerfið í Kaupmanna­höfn brást skjólstæðingum sínum með seinagangi og skorti á viðbrögðum þrátt fyrir fjölda viðvarana.

Mál dóttur íslenska mannsins er þar í brennidepli. Maðurinn, sem er eingöngu nefndur A. H. Jonsson í greininni til þess að vernda dóttur hans, er íslenskur að því er Heimildin hefur fengið staðfest.

Maðurinn segist hafa misst traust á félags­lega kerfinu. „Þau brugðust dóttur minni í svo mörg ár,“ segir maðurinn við Berlingske í þýðingu blaða­manns. „Ég hef verið varkár með að tala um þetta opinber­lega. En ef ég þarf að vernda barnið mitt og ef það getur hjálpað öðrum er það líklega síðasta úrræðið.“

Í greinar­gerð sem eftirlits­aðilinn …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár