Kim Jong Un lofar því að kjarnorkuáætlunin verði lögð til hliðar

Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa miðlað málum að undan­förnu og dregið hefur verulega úr spennunni á Kóreu­skaga.

Yfirvöld í Norður-Kóreu eru tilbúin til þess að leggja kjarnorku­áætlun sína á hilluna, í það minnst í bili. Með því yrði fram­leiðslu á kjarnorku hætt sem og tilraunum með lang­drægar flaugar.

Frá þessu er greint í umfjöllun The Guardian í dag, en mun betri samskipti eru nú milli Norður- og Suður-Kóreu eftir Ólympíu­leikana í Suður-Kóreu. Á þeim komust á betri samskipta­leiðir milli ríkjanna tveggja sem hafa leitt til þess, að Banda­ríkin eru tilbúin til viðræðna við Norður-Kóreu um að draga úr spennunni á Kóreu­skaga og tryggja frið.

Donald Trump, Bandaríkja­forseti, samþykkti fyrr í mánuðinum að hitta ráðamenn frá Norður-Kóreu, þar á meðal leið­togann Kim Jong Un, en setti það skilyrði að fallið yrði frá kjarnorku­áætlun Norður-Kóreu.

Sendi­nefndir Suður-Kóreu og Banda­ríkjanna eru nú sagðar vera staddar í Finnlandi, þar sem þess er beðið að fulltrúar yfirvalda í Norður-Kóreu komi til móts við þær og fundi um stöðu mála.

Stefnt er að sameiginlegri ráðstefnu ríkjanna í maí, þar sem umfjöllunar­efnið yrði kjarnorku­áætlun Norður-Kóreu og friðar­umleitanir.

Mikil spenna hefur verið á Kóreu­skaga undan­farin tvö ár, en tilraunir Norður-Kóreu með lang­drægar flaugar, og umfangs­miklar heræfingar Banda­ríkjanna og Suður-Kóreu, hafa leitt til eldfims ástands.

Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt sér fyrir efnahags­þvingunum gagnvart Norður-Kóreu, sem enn eru í gildi. Meðal annars hefur olíu­innflutningur til landsins verið bannaður að stórum hluta, sem hefur haft miklar og skyndilegar efnahags­afleiðingar í för með sér.

Íbúar á Kóreu­skaga eru um 75 milljónir. Rúmlega 50 milljónir í Suður-Kóreu og 25 milljónir í Norður-Kóreu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár