Rætt um að lengja afgreiðslutíma en ákveðið að hafa aðgerðir óbreyttar

Sóttvarna­takmarkanir verða óbreyttar í tvær vikur. Á þeim tíma verður safnað gögnum, m.a. um hið nýja afbrigði ómíkrón, til að meta stöðuna.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í ljósi óviss­unnar af hinu nýja afbrigði kórónu­veirunnar og samhliða því að þótt ástandið sé orðið viðráðanlegt í dag hafi álagið á heilbrigðis­kerfið verið lang­varandi, verða sóttvarna­aðgerðir óbreyttar næstu tvær vikur. Þetta tilkynnti Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra að loknum ríkis­stjórnar­fundi í dag. „En við munum og bindum vonir við að við getum slakað til fyrr ef gögn benda okkur á að það sé óhætt,“ sagði Willum. Áfram­haldandi aðgerðir eru í fullkomnu samræmi við minnis­blað sóttvarna­læknis að sögn ráðherrans.

Reglugerð um takmörkun á samkomum sem sett var 12. nóvember fellur úr gildi á morgun, 8. desember. Er hún var sett var faraldurinn í mikilli uppsveiflu og á tíma­bilinu hafa tugir smita greinst á hverjum degi. Flest voru smitin yfir 200 þann 15. nóvember. Síðustu daga virðist sem bylgjan sé í rénun þrátt fyrir að enn séu að greinast um og yfir 100 smit á hverjum degi. Fimm liggja nú á gjörgæslu vegna COVID-19.

Fimmtíu mega koma saman en allt að 500 ef hraðpróf eru notuð. Opnunar­tími veitinga­staða er og verður sem sagt áfram til kl. 22 og þurfa gestir að hafa yfirgefið staðinn kl. 23.

Willum segir að meðal þeirra gagna sem þarf nú að meta varða hið nýja afbrigði ómíkron. Meta þurfi t.d. hvernig afbrigðið virki gagnvart hrað­greiningar­prófum og bólu­setningum.

Ráðherrann segir að ólík sjónarmið hafi verið innan ríkis­stjórnarinnar á fundinum í dag um hversu hratt ætti að slaka á aðgerðum, „en niður­staðan var þessi og full samstaða í ríkis­stjórninni að horfa svona á þetta.“

Á fundum var því m.a. velt upp að hans sögn hvort lengja ætti opnunar­tíma veitinga­staða eða fara úr 50 manna fjölda­takmörkum í hundrað. „En maður þarf bara að hafa gögnin,“ segir Willum. „Það er ekki gott að taka svoleiðis ákvarðanir af því bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár