Fjárfestingaarmur Samherja kaupir Landsbankahúsið á Akureyri

Fjár­festinga­félagið Kaldbakur, sem er í eigu Samherja, hefur gert samkomulag um kaup á Lands­bankahúsinu í miðbæ Akureyrar. Þetta er önnur starfsstöð Lands­bankans á lands­byggðinni sem Samherja­tengdir aðilar kaup á síðastliðnum tveimur árum.

Hrifinn af Landsbankahúsum
Hrifinn af Lands­banka­húsum Svo virð­ist sem Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri Samherja, sé hrif­inn af húsa­kosti Lands­bank­ans en nú er hann við­rið­inn kaup á öðru úti­búi bank­ans á tveimur árum. Mynd: Auðunn Níelsson

Kaldbakur, sem er fjárfestingaarmur útgerðar­risans Samherja, hefur keypt Lands­bankahúsið í miðbæ Akureyrar fyrir 685 milljónir. Skoða á möguleika á að stækka húsið í samræmi við teikningar Guðjóns Samúels­sonar arkítekts, samkvæmt Eiríki S. Jóhanns­syni, framkvæmda­stjóra Kaldbaks og stjórnar­formanni Samherja. 

Tilkynning um kaupin birtist á vef Samherja í dag. Þar segir að tilboð Kaldbaks hafi reynst hæst en húsið var auglýst til sölu fyrir um mánuði síðan. Samkvæmt tilkynningu Samherja bárust sjö tilboð í húsið. 

Þetta er ekki fyrsta starfstöð Lands­bankans sem aðilar tengdir Samherja kaupa, því árið 2020 keypti Sigtún, félag í eigu Kristjáns Vilhelms­sonar og viðskipta­félaga hans Leó Árnasonar, hús Lands­bankans á Selfossi. Voru kaupin hluti af þróun „nýs“ miðbæjar á Selfossi. Líklega eru svipuð áform uppi á Akureyri af hálfu Kaldbaks.

Eiríkur segir að glæða eigi Lands­bankahúsið fyrir norðan lífi og varðveita það.

„Kaupin á Lands­bankahúsinu veitir Kaldbaki kærkomið tækifæri til að taka þátt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er að verða eitthvert auðmannasport að eignast miðbæi út um allt. Það eru skrítin stöðutákn sem að íslenskir ólígarkar vilja koma sér upp til að monta sig af.
    1
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Gleymdu ekki Ríkisstjórn Kötu Jakk,það á nú margur minna
      1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hvaðan fær Samherji alla þessa aura?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár