Olíuverð heldur áfram að hríðfalla

Fjár­festar óttast að eftir­spurnin í heims­búskapnum sé að falla, með tilheyrandi efnahags­erfiðleikum.

Tunnan af hráolíu hefur hríð­fallið í verði í dag, og kostar nú 51 Bandaríkjadal. Fyrir rúmlega einum mánuði kostaði tunnan tæplega 70 Bandaríkja­dali.

Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal óttast fjár­festar nú að tolla­stríð Banda­ríkjanna og Kína sé farið að grafa undan trausti á mörkuðum, og að fjár­festar muni á næstunni halda að sér höndum, með þeim áhrifum að eftir­spurn minnki og dragi úr hagvexti.

Fyrir Ísland eru það góðar fréttir að olíu­verðið lækki, þar sem það dregur úr kostnaði við olíukaup heimila og fyrir­tækja.

Sveiflur olíuverðs hafa verið verulegar að undan­förnu, en lækkunin í dag hefur verið 3,4 prósent og er því spáð að það geti farið enn lægra niður. Á undan­förnum fimm árum hefur sveiflast frá 110 Bandaríkja­dölum, í lok árs 2014, og niður í 25 Bandaríkja­dali um 18 mánuðum síðar. Frá þeim tíma hefur það stigið hæst í tæplega 80 Bandaríkja­dali, en síðan sveiflast frá 45 til 70 Bandaríkja­dali.

Þessar tíðu sveiflur hafa meðal annars verið skýrðar með því, að umræða um tolla­stríð og nýjar viðskipta­hindranir, t.d. gagnvart Íran og Rússlandi, valdi því að meiri óvissa sé um hvernig efnahags­málin í heiminum muni þróast á næstu misserum.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn spáir því að hagvöxtur í heiminum verði 3,3 prósent á þessu ári, en hann verður borinn uppi af miklum vexti í Asíu.

Meiri hægagangi er spáð í Evrópu, og hafa spárnar að undan­förnu gert ráð fyrir að heldur meiri erfið­leikar séu í kortunum en áður var talið.

Á Íslandi hefur verið þver­öfugur gangur í efnahags­málunum. Eftir mikinn uppgang á undan­förnum árum, og 4,6 prósent hagvöxt í fyrra, er því spáð að það verði 0,4 prósent samdráttur í lands­framleiðslu, að því er segir í Peninga­málum Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár