Seðlabanki Bandaríkjanna hækkar vexti - Ekki hlustað á Trump

Seðla­banki Banda­ríkjanna heldur áfram að hækka vexti. Í dag var ákveðið að hækka vextina, í fjórða sinn á árinu.

Seðla­banki Banda­ríkjanna ákvað í dag að hækka vexti um 0,25 prósentu­stig, úr 2,25 prósent í 2,5 prósent.

Samkvæmt spá sem bankinn kynnti í dag, er dregið úr líkum á miklum og hröðum vaxta­hækkunum á næsta ári, og líkur taldar standa til þess að hagvöxtur verði minni í Banda­ríkjunum á næsta ári en áður hafði verið gert ráð fyrir.

Vaxta­hækkunin kom markaðs­aðilum ekki á óvart, sé mið tekið af viðbrögðum fjárfesta á markaði, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hafði varað seðla­bankann við því að halda áfram að hækka vexti, en þetta var fjórða vaxta­hækkunin á árinu. frá árinu 2008 og fram til loka árs 2016 var vöxtum haldi við núllið í Banda­ríkjunum, en að undan­förnu hafa þeir verið að hækka, í takt við batnandi efnahag.

Líkur eru taldar á því að verðbólga muni fara hækkandi á næstunni í Banda­ríkjunum, og því telur bankinn að frekari hækkun vaxta sé í kortunum.

Á undan­förnum vikum og mánuðum hefur Trump gagnrýnt bankann og sagt hann „brjálaðan“ (crazy), að vera að hækka vexti. Hann nefndi einnig að hann vilji hafa vextina við núllið, til að halda hjólum gangandi og útvega fjármagn í fjár­festingar.

Jerome Powell, seðla­bankastjóri, er sagður hafa gefið út skýr fyrirmæli, þegar hann tók við stöðu sinni, um að starfs­fólk seðla­bankans ætti ekki að hlusta á stjórn­málamenn þegar það væri að sinna sinni vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár