Framkvæmir tannhvíttun á fermingarbörnum: „Hvorki löglegt né siðferðilega rétt“

Kristín Þórhalls­dóttir auglýsir tann­hvíttun þrátt fyrir að hafa einungis diplómupróf frá snyrti­skóla. Formaður Tann­læknafélags Íslands fordæmir „aðgerðina“.

Skjáskot af Facebook-síðu
Skjáskot af Facebook-síðu Síða Stjörnu­bros var með 5275 like þegar þetta var skrifað.

Kristín Þórhalls­dóttir stendur fyrir tann­hvíttun á allt að 12 ára börnum í gegnum fyrirtæki sitt Stjörnu­bros. Krístín er í raun algjör­lega ómenntuð til að sinna slíkri aðgerð, en samkvæmt kynningu sem birtist á vefsíðunni krom.is nýverið er hún með „diploma í faginu frá Bristol í Bretlandi.“ Þegar betur er að gáð kemur í ljós að diplóman er frá Fuss Beauty School. Bæði Kristín Heimis­dóttir, formaður Tann­læknafélags Íslands, og Ásta Óskars­dóttir, vara­formaður sama félags, gera alvarlegar athuga­semdir við þessa aðgerð Kristínar. Aðgerðin getur skemmt fyrir lífstíð ómótaðar tennur barna.

Stundin villti á sér heimildir og þóttist vera foreldri fermingar­barns sem vildi koma í tann­hvíttun. Það var ekkert mál að sögn Kristínar. Í seinna samtali við Stundina segir Kristín að hún hafi framkvæmt tannhvíttunn þrisvar sinnum á börnum undir sextán ára aldri. „Ég er ekki að gera slæma hluti. Ég er bara föst á einhverju gráu svæði út af einhverjum lögum og reglum,“ segir Kristín. Stjörnu­bros hefur ítrekað verið auglýst hjá aha.is og fann Stundin minnst sjö tilvik þar sem tíma­bundin tilboð voru í boði á vefsíðunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár