Björn Zoëga ráðinn for­stjóri Karolinska

Fyrr­verandi for­stjóri Land­spítalans hefur verið ráðinn for­stjóri Karolinska sjúkra­hússins í Sví­þjóð.

Björn Zoëga
Björn Zoëga Mynd: Skjáskot/RÚV

Björn Zoëga, fyrr­verandi for­stjóri Land­spítalans, hefur verið ráðinn for­stjóri Karolinska sjúkra­hússins í Sví­þjóð. Hann tekur við stöðunni í vor eða snemma sumars að því er sænskir miðlar greina frá. Frétta­blaðið greinir fyrst frá íslenskra miðla.

Samkvæmt fréttinni er haft eftir Birni, sem síðast gegndi stöðu aðal­fram­kvæmda­stjóra lækninga­sviðs sænsku GHP sam­stæðunnar, að hann fyllist bæði stolti og á­nægju með ráðninguna. Að­stæður á Karolinska séu í heims­klassa og hyggst hann takast á við þær á­skoranir sem starfinu fylgja.

Birgir Jakobs­son, fyrr­verandi land­læknir en nú að­stoðar­maður heil­brigðis­ráð­herra, gegndi stöðu for­stjóra Karolinska sjúkra­hússins frá 2007 til 2014.

Björn sagði upp störfum sem forstjóri Land­spítalans í lok september árið 2013. Hann sagði í yfir­lýsingu vegna uppsagnarinnar að nokkrar ástæður væru fyrir uppsögn sinni og nefndi sérstak­lega fjárskort spítalans. Hann sagði nauðsyn­lega uppbyggingu ekki í augnsýn.

Þetta var í annað sinn á rúmlega ári sem Björn tók ákvörðun um að hætta sem forstjóri Land­spítala. Það ætlaði hann að gera árið áður þegar honum barst boð um starf erlendis. Eftir viðræður við Guðbjart Hannesson, þáverandi heilbrigðis­ráðherra, ákvað Björn að halda áfram í starfi forstjóra. Þá fékk hann loforð um aukið fjár­framlag til tækja­kaupa og um fleiri aðgerðir í þágu spítalans. Björn átti einnig að fá launa­hækkun en ekkert varð af henni vegna harðrar gagnrýni starfs­fólks á spítalanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár