Forsætisráðuneytið telur ekkert benda til þess að nafnlausi kosningaáróðurinn hafi verið ólöglegur

„Vandséð hvað stjórn­völd geti gert“ til að upp­lýsa hverjir stóðu á bak við nafn­lausar aug­lýs­ingar.

Þessari áróðursmynd var dreift með skipulegum hætti á samfélagsmiðlum í aðdraganda kosninga.
Þessari áróð­urs­mynd var dreift með skipu­legum hætti á sam­fé­lags­miðlum í aðdrag­anda kosn­inga. Mynd: Facebook / Kosningar 2017

Ekkert bendir til þess að nafn­lausar aug­lýs­ingar sem beindust gegn ákveðnum stjórn­mála­flokkum og voru áber­andi á sam­fé­lags­miðlum fyrir alþing­is­kosn­ingar haustin 2016 og 2017 hafi verið ólög­legar miðað við núgild­andi lög. Því er vand­séð hvað stjórn­völd geti gert til að graf­ast nánar fyrir um hverjir stóðu á bak við þær. Þetta kemur fram í skýrslu for­sæt­is­ráð­herra um aðkomu og hlut­deild huldu­að­ila í kosn­ingum sem lögð var fram á Alþingi í dag.

„Þær rann­sókn­ar­heim­ildir sem helst kæmu til greina væru í höndum lög­reglu en þá yrði að vera uppi grunur eða kæra um refsi­vert brot,“ segir í skýrsl­unni. Bent er á að sam­kvæmt fjöl­miðla­lögum getur fjöl­miðla­nefnd kært brot á lög­unum til lög­reglu.

„Alvar­leg­ustu brotin í þessu sam­bandi, sem mögu­lega gætu tengst nafn­lausum kosn­inga­á­róðri, væru brot á 27. gr. fjöl­miðla­laga um bann við hat­ursá­róðri og hvatn­ingu til refsi­verðrar hátt­semi. Þá er kveðið á um það í 2. mgr. 52. gr. lag­anna að fjöl­miðla­nefnd geti „að und­an­geng­inni lög­mæltri máls­með­ferð sam­kvæmt fjöl­miðla­lögum bannað, með ákvörðun, miðlun efnis sem telst and­stætt ákvæðum laga.“

Hér er prýði­legt dæmi um þær kost­uðu aug­lýs­ingar sem voru áber­andi á sam­fé­lags­miðlum í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga.

Í skýrslu­beiðni þing­manna til for­sæt­is­ráð­herra var farið fram á að fjallað yrði um hvort stjórn­mála­flokkar, sem buðu fram í kosn­ingum til Alþingis 2016, hafi gert grein fyrir fram­lögum til kosn­inga­bar­áttu sinnar í formi aug­lýs­inga­her­ferða á vef- og sam­fé­lags­miðlum sem kost­aðar voru af þriðja aðila, sbr. 1. og 2. mgr. 6. gr. og 1. mgr. 8. gr. laga um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra, nr. 162/2006. Um þetta segir í skýrsl­unni: „Ekkert liggur fyrir um það hverjir stóðu á bak við umræddar her­ferðir og slíkar upp­lýs­ingar er ekki hægt að lesa til dæmis úr þeim gögnum sem Rík­is­end­ur­skoðun birtir á vef sínum. Eftirlit Rík­is­end­ur­skoð­unar bein­ist að fjár­málum stjórn­mála­sam­taka og ekk­ert liggur fyrir um hvort stjórn­mála­sam­tök sem lúta því eft­ir­liti hafi staðið á bak við umræddar her­ferðir eða notið góðs af þeim þannig að slíks fram­lags bæri að geta í reikn­ingum stjórn­mála­sam­tak­anna eða ein­stakra fram­bjóð­enda.“

Fram kemur í nið­ur­lagi skýrsl­unnar að grípa þurfi til aðgerða til að koma í veg fyrir óeðli­leg áhrif á kosn­ingar þar sem stjórn­mála­sam­tök, aðilar tengdir þeim eða aðilar sem draga taum til­tek­inna stjórn­mála­afla geti „beitt sér með óprút­tnum hætti án þess að kjós­endur geti áttað sig á hver eigi í hlut eða varað sig á ann­ar­legum hvötum og hags­munum sem kunna að búa að baki“.

Gæta þurfi að því að reglur sem tryggja eiga gagn­sæi fjár­mögn­unar stjórn­mála­starf­semi virki eins og til sé ætl­ast.

„Sama kann að eiga við um her­ferðir í þágu til­tek­inna mál­efna án þess að þær teng­ist til­teknum stjórn­mála­sam­tökum. Þá væri æski­legt að í gildi væru reglur um póli­tískar aug­lýs­ingar, ekki síst í aðdrag­anda kosn­inga, og óháð miðl­un­ar­formi.“

Fram kemur að engar vís­bend­ingar séu um aðkomu erlendra aðila að kosn­inga­bar­áttu hér á landi líkt og mörg önnur ríki hafa staðið frammi fyrir. „Fyllsta ástæða er þó til að vera á varð­bergi. Fylgjast þarf vel með umræðu í öðrum Evr­ópu­ríkjum um aðgerðir til að draga úr umfangi og áhrifum rangra og vill­andi upp­lýs­inga og eftir atvikum fara í sams konar leiðir hér á landi og þar er verið að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár