Trump: Það yrði heiður að hitta Kim Jong-Un

Bandaríkja­forseti virðist í sálfræði­hernaði vegna þeirra miklu spennu sem nú er á Kóreu­skaga.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, ásamt herforingjum.
Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, ásamt her­for­ingjum. Mynd: EPA

„Það væri heiður að hitta Kim Jong-Un.“ Þetta sagði Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, fyrr í dag í viðtali við Bloomberg.

Mikil spenna er nú á Kóreu­skaga en ríkis­fjölmiðill Norður-Kóreu, KCNA, hafði eftir utan­ríkis­ráðuneyti landsins í dag að líklega yrði því hraðað að byggja upp kjarnorku­vopn til þess að vera betur undirbúin ef til hernaðar kemur af hálfu Banda­ríkjanna. Í frétt KCNA segir enn fremur að Banda­ríkin séu að sýna árásar­vilja sem þurfi að bregðast við.

Ástandið á Kóreu­skaga hefur farið hratt versnandi frá því Donald Trump tók við völdum, og Norður-Kóreumenn hófu að fjölga tilraunum sínum með lang­drægar flaugar. Bandaríkjaher hefur verið að vígbúast við landamæri Suður-Kóreu og Norður-Kóreu, og þá hefur liðsafli á hafi úti einnig verið efldur.

Stjórn­völd í Japan og Suður-Kóreu hafa krafist tafar­lausra aðgerða til að hindra frekari flugskeyta­skot Norður-Kóreu, en síðustu þrjár tilraunir hersins þar í landi hafi mistekist. Fimm sértækar tilraunir landsins með kjarnorku­vopn hafa verið framkvæmdar, en samþykktir Sameinuðu þjóðanna heimila þær ekki.

Trump hefur sagt að herská hegðun stjórn­valda í Norður-Kóreu, með hinn óútreiknanlega Kim Jong-Un í broddi fylkingar, sé óásættanleg. Tilraunum verði að ljúka. Ef það gerist ekki, þá muni það hafa alvarlegar afleiðingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár