Ekki sést jafn mikil neikvæð áhrif á flugiðnað síðan 11. september 2001

Grein­endur segja að smám saman sé að koma í ljós hversu gríðarleg áhrif kóróna­veiran hefur haft í Kína og víðar. Útlit er fyrir að efnahags­legu áhrifin verði mikil á næstu mánuðum.

Kóróna­veiran hefur haft gríðarleg áhrif á flugiðnað og ferða­þjónustu um allan heim, en hvergi hafa áhrifin verið meiri en í Kína og í öðrum Asíu­ríkjum. Á sumum stöðum hefur allt að 80 prósent samdráttur orðið, frá því að veiran kom upp í Wuhan í Kína, samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal. 

Mörg flugfélög í Asíu eru nú sögð leita leiða til að hagræða verulega í rekstri, með uppsögnum starfs­fólks og öðrum nauðsyn­legum aðgerðum. Ef það gengur ekki, eru fjölda­gjaldþrot sögð í kortunum.

Sú dýfa sem flug­iðnaðurinn hefur upplifað að undan­förnu, vegna veirunnar, er sú mesta sem sést hefur frá því 11. september 2001, þegar turnarnir tveir í New York hrundu eftir að farþega­þotum var flogið á þá í hryðjuverka­árás.

Vísitölur hlutabréfa­markaða hafa fallið mikið á undan­förnum tveimur dögum, eða um 3 til 6 prósent að meðaltali, sé horft til stöðu stærstu markaðana sérstak­lega. Í Banda­ríkjunum féll S&P500 vísitalan um 3 prósent, annan daginn í röð.

Á Íslandi hefur vísitala markaðarins fallið tvo daga í röð, og hefur meðal annars 20 prósent af markaðs­virði Icelandair þurrkast út, en það féll um 10,74 prósent í dag.

Ótti við að miklar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar vegna kóróna­veirunnar, eigi enn eftir að koma fram, er það sem nefnt er helst sem áhrifa­valdur á mikla neikvæðni á mörkuðum og lækkun á markaðs­virði fyrir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár