Vinstrimeirihluti í augsýn í Danmörku

Danskir vinstri flokkar eru með meirihluta í Danmörku, samkvæmt útgöngu­spám. Þing­kosningar fóru fram í Danmörku í dag.

Mette Fredriksen, leiðtogi Jafnaðar­manna í Danmörku, verður næsti forsætis­ráðherra landsins, samkvæmt útgönguspá, en kosið var til þings í Danmörku í dag. Mette 41 árs og yrði yngsti forsætis­ráðherra í sögu landsins.

Samkvæmt útgönguspá fengju vinstri og félags­hyggju­flokkar meirihluta á þinginu, eða 90 þingsæti. Sætin eru alls 179.

Danski þjóðar­flokkurinn er hruninn, miðað við niður­stöðuna í kosningunum fyrir fjórum árum. Útgöngu­spáin segir 9,8 prósent fylgi, en flokkurinn var með 21,1 prósent fylgi fyrir fjórum árum. Helsta stefnu­málið hefur verið harðari innflytjenda­stefna, en innflytjendamál voru eitt stærsta kosninga­málið fyrir fjórum árum.

Þegar um 93 prósent atkvæða hafa verið talin, eru jafnaðar­menn með 48 þingsæti en Venstre, sem er stærsta hægri­aflið í dönskum stjórn­málum, er með 43 sæti. Danski þjóðar­flokkurinn er með 16 þingsæti en hann fékk 37 þingsæti fyrir fjórum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár