Munu vaxtahækkanirnar í Bandaríkjunum stöðvast?

Yfir 60 prósent af gjaldeyris­varaforða heimsins er í Banda­ríkjadal, og því hafa vaxta­breytingar Seðla­banka Banda­ríkjanna víðtæk áhrif um allan heim. Fjár­festar virðast veðja á að nú fari að hægja vaxta­hækkana­ferli bankans.

Stýri­vextir í Banda­ríkjunum eru nú 2,5 prósent en Seðla­banki Banda­ríkjanna hækkaði vextina í fjórgang á árinu 2018, sem reitti Bandaríkja­forseta, Donald Trump, til mikillar reiði. Hann ræddi meðal annars opinber­lega að Seðla­banka­stjórinn, Jerome Powell, væri orðinn „galinn“ (crazy).

Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal í dag, víðlesnasta dagblaðs Banda­ríkjanna, eru margir fjár­festar, þar á meðal fagfjárfesta­sjóðir, farnir að veðja á að Seðla­bankinn muni fara sér hægar í vaxta­hækkunum á þessu ári og þá hægar en efnahags­spár bankans hafa gert ráð fyrir.

Það gæti haft jákvæð áhrif á þróun eigna­verðs, en árið í fyrra var það versta á hlutabréfa­markaði í Banda­ríkjunum í áratug.

Samkvæmt þeim var horft til þess að vextir gætu hækkað upp fyrir 3 prósent á árinu 2020, en fjárfesta telja nú að vextirnir gætu orðið þeir sömu í lok þessa árs og þeir eru nú í upphafi, eða 2,5 prósent.

Ástæðan fyrir því að allra augu eru nú á vöxtunum er ekki síst sú, að þessi töluverða vaxta­hækkun sem var á árinu 2018 hefur haft töluverð áhrif í bandarísku efnahags­lífi, og meðal annars leitt til kælingar á fasteigna­mörkuðum vítt og breitt. Fasteigna­verð er víða tekið að lækka, enda hækkar vaxta­stigið fjármagns­kostnað og getur þannig dregið úr eftir­spurn eftir fasteignum.

Að öðru leyti eru hagtölur í Banda­ríkjunum taldar jákvæðar þessi misserin. Atvinnu­leysi mælist um 4 prósent, og hagvöxtur verður á bilinu 2 til 3 prósent á þessu ári ef spár ganga eftir.

Áhrif af tolla­stríði Banda­ríkjanna og Kína hafa þó frekar reynst neikvæð fyrir Banda­ríkin, en margar spár gera ráð fyrir að það fari að draga til tíðinda í viðræðum milli Banda­ríkjanna og Kína, sem muni leiða til breytinga í viðskiptum landanna. Óvíst er þó hvernig sú breytingar verður og hvað hún mun þýða fyrir efnahags­lífið í hvoru landi fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár