Spegla sig í öðruvísi líkömum

Reykjavík Dance Festival hefst í vikunni og er í ár tileinkað þeim kjarna­konum sem byggðu upp dans­menningu á Íslandi. Framkvæmda­stjóri hátíðarinnar segir að opinberum jafnréttis­stefnum fylgi sjaldnast aðgerðir til að styðja við dans, listgrein sem byggi á vinnu kvenna og hinsegin fólks.

Úr sýningu Shonen
Úr sýn­ingu Shonen Franskir hreyfi­haml­aðir og ófatl­aðir dans­arar vinna saman í sýn­ing­unni Forme(s) de vie á Reykja­vík Dance Festival. Mynd: Olivia Droeshaut

Reykjavík Dance Festival hefst á miðvikudag og verður í þetta skiptið haldið undir yfir­skriftinni „Ástríðu­verknaður – labour of love“.

Pétur Ármannsson, framkvæmda­stjóri og annar listrænna stjórn­enda hátíðarinnar, segir að með yfir­skriftinni sé arfleið þeirra kvenna sem sköpuðu dans­senuna frá grunni síðustu árhundruð fagnað, en að vinna þeirra hafi oft verið ósýnileg og vanmetin.

„Þetta byggir á hugmyndinni um að ást sé eitthvað sem þú gerir, eitthvað sem þú iðkar, en sé ekki bara tilfinning sem þú finnur fyrir,“ segir hann. „Þetta er það sem er einkennandi fyrir íslenskar dans­listir, að starfa af ástríðu. Saga danslista á Íslandi er saga frumkvöðla­kvenna sem ruddu brautina, héldu erlendis, stunduðu dansnám, komu heim, stofnuðu skóla og héldu sýningar.“

Pétur bendir á að í upphafi 19. aldar hafi ekki verið neinn dans á Íslandi til að tala um vegna skemmtana­banns kirkjunnar. „Dans var bara strokaður út og fólk mátti ekki gleðjast,“ …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár