Stjórnarformaður LIVE: Fagmennska og hagsmunir sjóðfélaga réðu för

Stefán Svein­björns­son stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna segir í yfir­lýs­ingu að sjaldan hafi einn fjár­fest­ing­ar­kostur verið rýndur jafn vel og þátt­taka í hluta­fjár­út­boði Icelandair. Áhættan verið metin of mikil, miðað við vænta ávöxtun.

Stefán Sveinbjörnsson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Stefán Svein­björns­son, for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Mynd: Lífeyrissjóður verzlunarmanna.

Stefán Svein­björns­son, for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna (LIVE), hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar um hluta­fjár­út­boð Icelandair í fjöl­miðlum. Þar segir hann að nið­ur­staðan á ítar­legu mati stjórnar LIVE á því hvort fjár­festa ætti í Icelandair hefði verið sú að „áhættan í fjár­fest­ing­unni væri mikil og vænt ávöxtun vægi ekki upp þá áhættu.“

Deilur voru innan stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins um hvort taka ætti þátt í útboð­inu og þær hafa að hluta farið fram fyrir opnum tjöldum, eftir að útboðið fór fram. Guðrún Haf­steins­dóttir vara­for­maður stjórnar sjóðs­ins, hefur harmað að LIVE hafi ekki verið með. Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR lýsti í dag yfir van­trausti á hana. Fjár­mála­eft­ir­litið er að skoða ákvarð­ana­töku líf­eyr­is­sjóða varð­andi útboðið.

Stefán segir í yfir­lýs­ingu sinni að strax þegar Icelandair til­kynnti um útboðið hefði orðið ljóst að LIVE þyrfti að taka ákvörðun um að taka þátt, eða ekki. „Ljóst var að um óvenju­legt útboð væri að ræða þar sem hluta­fjár­aukn­ing­unni var ætlað að mæta tap­rekstri kom­andi mán­aða,“ segir Stefán, sem fer yfir það hvernig LIVE tók ákvörðun sína.

„Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna fór í mjög ítar­lega grein­ingu á þessum fjár­fest­inga­kosti. Sú grein­ing fól m.a. í sér að feng­inn var utan­að­kom­andi ráð­gjafi til að rýna fjár­fest­inga­kost­inn, haldnir voru fundir með stjórn­endum Icelandair, sendar voru skrif­legar spurn­ingar til félags­ins, farið var í rýni­vinnu með sér­fræð­ingum (e. air­line specialists) hjá Bloomberg, rýnt var í grein­ing­ar­efni úr flug­geir­anum, rýnt var í árs­reikn­inga erlendra flug­fé­laga og feng­inn var erlendur ráð­gjafi til að rýna í umhverf­is­þætti, félags­lega þætti og stjórn­hætti félags­ins. Til við­bótar þessu stillti líf­eyr­is­sjóð­ur­inn í sam­starfi við ráð­gjafa sinn upp verð­matslík­ani til að meta vænta ávöxtun af fjár­fest­ing­unni,“ segir Stefán og bætir við að sjaldan hafi „fjár­fest­inga­kostur sjóðs­ins verið rýndur með jafn ítar­legum hætti og hluta­fjár­út­boð Icelandair.“

Bendir á að fleiri lífeyrissjóðir hafi verið á sömu skoðun

Hann segir að fjórir stjórn­ar­fundir hafi verið haldnir þar sem fjár­fest­ingin var skoðuð og rædd ítar­lega.

„Nið­ur­staðan var að áhættan í fjár­fest­ing­unni væri mikil og vænt ávöxtun vægi ekki upp þá áhættu. Á þeim for­sendum var tekin ákvörðun um að taka ekki þátt í útboð­inu. Eins og fram hefur komið voru fleiri líf­eyr­is­sjóðir á sömu skoðun og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna að taka ekki þátt,“ segir Stefán.

Hann segir enn­fremur að hjá LIVE sé „fag­mennskan í fyr­ir­rúmi“ og teknar séu ákvarð­anir þar sem gætt er jafn­ræðis sjóðs­fé­laga.

„Í þessu máli sem öðrum réð fag­mennska og hags­munir sjóð­fé­laga því hvort sjóð­ur­inn bætti við þá hluta­fjár­eign sem fyrir var í þessu til­tekna félagi,“ segir Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár