Ragnar Þór lýsir yfir vantrausti á varaformann stjórnar LIVE

Formaður VR segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hljóti að taka mál­flutn­ing Guðrúnar Haf­steins­dóttur, vara­for­manns stjórnar LIVE, til skoð­unar og meta hana van­hæfa til starfa í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins vegna yfir­lýs­inga í fjöl­miðlum um útboð Icelandair Group.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR segir gagn­rýni Guðrúnar Haf­steins­dóttur, for­manns Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða og vara­for­manns stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, á það að að LIVE hafi ekki tekið þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group, með „miklum ólík­indum“.

Í færslu sem hann birtir á Facebook lýsir Ragnar yfir van­trausti á Guðrúnu, bæði sem stjórn­ar­mann í LIVE og sem for­mann Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, og skorar á Fjár­mála­eft­ir­litið um að taka nýleg ummæli hennar „til skoð­unar og meta hana óhæfa til að taka ákvarð­anir um fjár­fest­ingar fyrir hönd sjóð­fé­laga LIVE.“

Ragnar Þór vísar til við­tals við Guðrúnu á Vísi 18. sept­em­ber og segir að þar hafi hún lýst sjón­ar­miðum sem Fjár­mála­eft­ir­litið hljóti að gera athuga­semdir við, en í við­tal­inu sagð­ist Guðrún harma að LIVE hefði ekki tekið þátt í útboð­inu.

„Eignir Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna núna eru í kringum 950 millj­arðar. Þannig að þetta hefði þá verið 0,2 pró­sent af eigna­safni sjóðs­ins sem við hefðum þá lagt til í þessu útboði,“ er haft eftir Guðrúnu á Vísi.

Ragnar Þór gerir athuga­semdir við þetta og segir að í „ljósi stöðu sinnar og fyrri yfir­lýs­inga“ hljóti Fjár­mála­eft­ir­litið að „kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að Guðrún Haf­steins­dóttir sé van­hæf til að sitja í stjórn líf­eyr­is­sjóðs með því að rétt­læta fjár­fest­ingu í Icelandair vegna þess hversu lítið hlut­fall hún er af heild­ar­eignum.“

Ragnar segir Guðrúnu einnig hafa gefið í skyn, með því að tala um að LIVE hefði stutt við Icelandair í 40 ár, að „fag­leg sjón­ar­mið ríki ekki heldur „stuðn­ingur“ við mik­il­vægt fyr­ir­tæki í atvinnu­líf­inu“ og hún hafi lýst þeirri skoðun sinni að „vegna „sögu­legra“ sjón­ar­miða um ávöxtun“ væri rétt að taka þátt og einnig væri mik­il­vægt að fjár­festa í Icelandair til að verja störf.

„Guðrún hefur áður lýst því yfir að það sé lög­boðin skylda stjórn­ar­manna að hámarka arð­semi fjár­fest­inga ein­göngu,“ segir Ragnar Þór og bætir við:

„Ekkert að ofan­sögðu stenst nokkra skoðun, sam­þykktir sjóðs­ins, fjár­fest­ing­ar­stefnu hans eða lög sem gilda um fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða. Þess vegna skora ég á fjár­mála­eft­ir­litið að taka ummæli Guðrúnar Haf­steins­dóttur til skoð­unar og meta hana óhæfa til að taka ákvarð­anir um fjár­fest­ingar fyrir hönd sjóð­fé­laga LIVE.“

Stjórn VR í „fullum rétti“ með yfirlýsingum í sumar

Hann sakar Guðrúnu um að hafa farið fram með ásak­anir og dylgjur gagn­vart sér og full­trúum VR í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins. Hann segir að stjórn VR hafi verið í fullum rétti í sumar, þegar stjórnin skor­aði á stjórn LIVE um að taka ekki þátt í útboði Icelandair Group, vegna fram­komu flug­fé­lags­ins í kjara­deilu við Flug­freyju­fé­lag Íslands.

„Stað­reyndin er sú að það stríðir gegn sam­þykktum sjóðs­ins að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem brjóta á rétt­indum launa­fólks. Það er alveg skýrt og varla nokkur sem and­mælir því. Þannig vorum við í fullum rétti til að beina þeim til­mælum til stjórn­ar­manna sjóðs­ins um að brjóta ekki gegn sam­þykktum sjóðs­ins,“ skrifar Ragnar Þór, en þessi áskorun var dregin til baka þegar samn­ingar náð­ust á milli Icelandair og flug­freyja.

„Ekki nóg með það lýstum við yfir fullu trausti til starfs­manna og stjórn­ar­manna LIVE. Það traust er til staðar hver sem nið­ur­staðan hefði orðið. Hvorki for­maður eða stjórn VR höfðu nokkuð um það að segja hver nið­ur­staðan yrði,“ skrifar Ragnar Þór.

Fullyrðir að Fréttablaðið sé í herferð gegn honum og stjórnarmönnum VR í LIVE

Ragnar Þór segir að við­brögðin frá „valda­blokk atvinnu­lífs­ins“ við ákvörðun stjórnar LIVE um að taka ekki þátt í útboði Icelandair hafi verið ofsa­fengin og séu „lýsandi og afhjúp­andi um það ástand og vinnu­brögð sem þrif­ist hafa ára­tugum saman innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins þar sem atvinnu­lífið hefur gengið um á skítugum skónum og fara nú á taugum yfir því að loks­ins, já loks­ins sé armur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að skipa inn nægi­lega hæfa ein­stak­linga til að meta hverja fjár­fest­ingu út frá fag­legum for­sendum en ekki frænd­hygli, póli­tík, sér­hags­muna eða til­finn­inga.“

Hann seg­ist hafa fengið ábend­ingu fyrir nokkrum dögum um að Frétta­blaðið „ætl­aði í her­ferð“ gegn sér og stjórn­ar­mönnum VR hjá LIVE. „Þetta fékk ég eftir nokkuð áræð­an­legum heim­ildum svo ekki sé meira sagt,“ segir Ragnar Þór, sem telur þetta hafa komið á dag­inn og segir „Frétta­blaðið nú upp­fullt af dylgjum í minn garð og þeirra sem sitja fyrir okkar hönd í stjórn LIVE.“

Hann seg­ist hafa verið „við öllu búinn í þeim efnum því einn aðal­eig­andi Frétta­blaðs­ins, Helgi Magn­ús­son fjár­festir, á sér einmitt langa og lit­ríka sögu innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem fjár­festir, stjórn­ar­maður og for­maður stjórnar LIVE og Samtaka iðn­að­ar­ins eða alveg þangað til að bak­land sjóðs­ins fékk nóg og bol­aði honum út.“

Þurfi að „aftengja atvinnulífið frá stjórnum lífeyrissjóða“

Ragnar Þór segir að þetta mál und­ir­striki „mik­il­vægi þess að aftengja atvinnu­lífið frá stjórnum líf­eyr­is­sjóða“ og að vinna verði að hefj­ast við það að „ákvörð­un­ar­valdið við stórar fjár­fest­ingar og skipun í stjórnir sjóð­anna verði alfarið í höndum sjóð­fé­lag­anna sjálfra.“

„Atvinnu­lífið og aðrir tals­menn sér­hags­muna sem hafa litið á eft­ir­launa­sjóði almenn­ings sem fé án hirðis ganga nú vask­lega fram í að krefja eft­ir­lits­að­ila og lög­gjafann um að taka til skoð­unar "skoð­anir" þeirra sem voru á móti því að fjár­festa í einum áhættu­mesta atvinnu­rekstri sem um getur. Á meðan skoð­anir þeirra sem vildu taka þátt eru góðar og gildar og þarfn­ast ekki frek­ari skoð­unar af hálfu eft­ir­lits­að­ila,“ skrifar Ragnar Þór, sem klykkir út með því að biðja les­endur um að deila færslu sinni, vilji þeir „Samtök atvinnu­lífs­ins úr stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár