Íslensk stjórnvöld mótmæla sjaríalögum og grýtingum á samkynhneigðum í Brúnei

„Réttindi hinsegin fólks eru grund­vall­ar­þáttur í mann­rétt­inda­stefnu Íslands og við leggjum mikla áherslu á þau í störfum okkar í mann­réttinda­ráð­inu,“ segir utan­rík­is­ráð­herra.

Íslensk stjórn­völd, í sam­starfi við 35 ríki sem til­heyra banda­lagi ríkja um rétt­indi hinseg­in­fólks, hafa for­dæmt ákvörðun stjórn­valda í Brúnei að hrinda í fram­kvæmd sjar­ía­lögum sem kveða meðal ann­ars á um að grýta megi sam­kyn­hneigða til bana.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu eru stjórn­völd í Brúnei hvött til að aft­ur­kalla breyt­ing­arnar og tryggja að öll refsi­lög­gjöf í land­inu sé í sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar Brúnei á sviði mann­rétt­inda. 

„Það er dap­ur­legt að enn þann dag í dag skuli hinsegin fólk sæta slíkum ofsóknum af hálfu stjórn­valda að lífi þess sé ógnað. Réttindi hinsegin fólks eru grund­vall­ar­þáttur í mann­rétt­inda­stefnu Íslands og við leggjum mikla áherslu á þau í störfum okkar í mann­réttinda­ráð­inu,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ingu á ráðu­neyt­isvefnum. „Þessi rétt­indi eru aldrei afstæð heldur gilda þau alltaf, alls staðar. Þess vegna hvorki getum við né megum láta þessar ákvörðun stjórn­valda í Brúnei átölu­lausa.“ 

Ákvörðun Brúnei um að hrinda sjaría-lögum í fram­kvæmd hefur verið for­dæmd víða um heim frá því að til­kynnt var um hana um síð­ustu mán­aða­mót. Ísland gerð­ist aðili að Equal Rights Coalition,banda­lagi ríkja um rétt­indi hinseg­in­fólks, á síð­asta ári en banda­lagið var sett á lagg­irnar árið 2014 og telur á fimmta tug ríkja í Evrópu, Suður- og Norður-Ameríku og Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár