Klám, sóðaskapur og annað vinsælt skemmtiefni

Fyrir­tækið sem rekur klám­síðuna Pornhub er risavaxið fyrirbæri sem teygir anga sína um allan heim og veltir milljörðum. Í krafti auðæfa og samfélags­breytinga hefur það gjör­breytt ásýnd klám­iðnaðarins á skömmum tíma og getið sér gott orð fyrir framlög til góðgerðar­mála en ekki eru allir sammála um ágæti þeirrar þróunar eða hvað hún kann að kosta.

Fyrstu klám­myndirnar voru sennilega einhvers konar útskorin líkneski en elstu minjar um slíka fram­leiðslu eru frá árdögum mannkyns í vöggu siðmenningarinnar fyrir botni Miðjarðar­hafs. Það er auðvitað erfitt að vita í hvaða tilgangi menn fram­leiddu þessar grafísku myndir af kynlífi, í einhverjum tilvikum var um að ræða helga muni og frjósemis­tákn, en sennilega gekk fólki fleira en eitt til frá upphafi. Flestir kannast til dæmis við Kama Sutra sem á uppruna sinn í helgi­ritum hindúa en er um leið gríðar­lega erótísk.

Eftir því sem greinar­höfundur kemst næst eru elstu heimildir um klám á Íslandi að finna í Bjarnar sögu Hítdæla­kappa. Björn þessi var frændi Egils Skallagrímssonar en í sögunni segir frá Þórði nokkrum sem varð fyrir því óláni að einhver fann homma­klámið hans. Varð það kveikjan að tölu­verðum illdeilum.

Svo segir í sögunni: „Þess er nú við getið að hlutur sá fannst í hafnar­marki Þórðar er þvígit vinveittlegra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár