Vendipunkts að vænta í kjaraviðræðunum í fyrramálið

Stjórn Samtaka atvinnu­lífsins fundaði í kvöld um stöðuna í kjara­viðræðum. Formaður VR segir að það ráðist fljótt í fyrra­málið hvort atvinnu­rekendur sættist á þá hugmynda­fræði sem verkalýðs­félögin vilji leggja upp með í viðræðunum.

Ekki opin bók
Ekki opin bók Halldór Benjamín, fram­kvæmda­stjóri SA, segir að ekki ætti að lesa neitt sér­stakt í fund stjórnar sam­tak­anna sem hald­inn var í kvöld. Hann ætlar ekki að tjá sig um við­ræð­urnar í dag. Ragnar Þór segir ögur­stund nálg­ast.

Stjórn Samtaka atvinnu­lífsins hittist til skrafs og ráða­gerðar í kvöld. Til umræðu er hvort og þá hvernig mæta eigi kröfum stéttar­félaganna sem þess dagana sitja gegnt þeim við samninga­borðið hjá ríkis­sátta­semjara um að kjara­bótum verði ekki velt út í verðlag. 

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda­stjóri samtak­anna, sagðist funda helst vikulega með stjórninni á meðan kjara­viðræðum stæði; ekki ætti að lesa neitt sérstakt í fundinn sem haldinn var í kvöld. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist aftur á móti eiga von á því að það skýrist tiltölu­lega snemma á morgun hvort náist saman um samning.

„Mér sýnist þetta ráðist fljótlega á morgun hvort það verði gerð atlaga að þessu eða ekki,“ segir Ragnar Þór við Stundina. 

Er úrslita­stundin runnin upp?

„Mér finnst það bara blasa við.“ 

Verður að verja hækkanirnar

Ragnar Þór gerir ráð fyrir að stjórnar­menn Samtaka atvinnu­lífsins séu nú að gera upp …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár