Trump skipar „sinn mann“ í Hæstarétt

Neil Gorsuch er nýr dómari í Hæstarétti Banda­ríkjanna eftir að Donald J. Trump skipaði hann í dóminn.

Neil Gorsuch flytur ávarp eftir að tilkynnt var um að hann yrði hæstaréttardómari í Bandaríkjunum.
Neil Gorsuch flytur ávarp eftir að til­kynnt var um að hann yrði hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Neil Gorsuch verður líklega nýr dómari í Hæstarétti Banda­ríkjanna eftir að Donald J. Trump tilnefndi hann dómara í spennu­þrunginni athöfn. Gorsuch er sagður íhalds­samur dómari, Repúblikani alveg inn að beini, en þykir um margt hafa staðið sig vel á dómara­ferli sínum til þessa, að því er segir í New York Times.

Demó­kratar hafa þó þegar, margir hverjir, mótmælt útnefningu Gorsuch og sagt hana grafa undan stjórn­skipan landsins og útilokað sjálfstæð vinnu­brögð réttarins. Elisabeth Warren er einn þeirra sem hefur gagnrýnt skipan Gosuch og segir dómara­feril hans sýna að hann hafi ekki það sem þarf til að takast á við starfið, flóknara sé það nú ekki.

Gorsuch er 49 ára gamall og með lögfræði­menntun frá Columbia í New York og Harvard háskóla í Boston.

Gorsuch hefur starfað við áfrýjunar­dómstólinn í Denver og er málsvari trúfrelsis og þykir mikill bókstafs­trúar­maður þegar kemur að túlkun stjórnar­skrárinnar. Hann segist horfa mikið ti þess hvernig Scalia nálgaðist dómara­starfið en hann var 79 ára þegar hann lést.

Gorusch sagði í ræðu, sem hann flutti þegar hann var útefndur dómari, að hann hefði alltaf litið upp til Antonin Scalia, sem lést í febrúar síðastliðnum. Scalia var umdeildur fyrir íhalds­samar skoðanir og þótti vera haukur í horni á íhalds­samasta hluta Repúblikana­flokksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár