Norskur ráðherra segir af sér

Sjávar­útvegs­ráðherra Noregs mun segja af sér seinna í dag eftir að hafa mætt gagnrýni vegna ótilkynntrar Írans­ferðar fyrr í sumar.

Per Sandberg, fráfarandi sjávarútvegsráðherra Noregs.
Per Sandberg, frá­far­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs. Mynd: EPA

Per Sandberg sjávar­útvegs­ráðherra Noregs mun segja af sér seinna í dag, í kjölfar hneykslis­máls um Íransferð hans fyrr í sumar. Þetta herma heimildir Aftenposten.

Sandberg hefur mætt harðri gagnrýni eftir að í ljós kom að hann hafi brotið fjölda öryggis­reglna embættis síns með því að hafa ferðast til Íran með kærustu sinni í júlí, en hvorki hans eigið ráðuneyti né forsætis­ráðuneytið fengu að vita um heim­sóknina fyrir fram. Ráðherrann sagðist ekki hafa tilkynnt ferðina þar sem hún hafi verið hluti af breyttum ferða­plönum síns og kærustu sinnar, en hann ætlaði upphaf­lega til Tyrklands.

Hörðust hefur gagnrýnin þó verið vegna þess að Sandberg tók vinnu­símann sinn með til Íran og braut þannig reglur þjóðar­öryggis­stofnunarinnar. Síminn hefur nú verið afhentur öryggis­þjónustu Noregs til rann­sóknar.

Samkvæmt heimildum Aftenposten mun Harald Tom Nesvik taka við af Sandberg sem sjávar­útvegs­ráðherra á ríkis­stjórnar­fundi eftir hádegi í dag. Nesvik var þing­flokks­formaður norska Framfara­flokksins (Frp) á síðasta kjör­tímabil, en afþakkaði þingsæti fyrir sumarið vegna fjölskyldu­aðstæðna.

Sandberg hefur verið sjávar­útvegs­ráðherra í ríkis­stjórn Ernu Solberg síðan í desember 2015. Hann var einnig settur dómsmála­ráðherra um tíma fyrr í ár. Hann kemur úr Framfara­flokknum og hóf stjórnmála­feril sinn sem þingmaður fyrir 21 ári síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár