Plastbann gæti haft öfug áhrif

Mögulegt bann á allri plast­notkun gæti leitt til aukinnar mengunnar og hærra neytenda­verðs ef ekki er farið rétt að, samkvæmt nýrri umfjöllun BBC.

Blátt bann á plast­notkun gæti haft slæm umhverfis­áhrif og leitt til aukins kostnaðar meðal neytenda, vænlegra sé að stuðla að nýsköpun í plast­framleiðslu og styðja við minna vistspor almennings. Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun BBC um plast­notkun á heimsvísu, sem kom út síðasta föstudag.

Í fréttinni er talað um niður­stöður nýrrar skýrslu umhverfis­stofnunar Sameinuðu þjóðanna, en samkvæmt henni hafa meira en 60 lönd kynnt laga­frumvörp sem miða að því að minnka plastpoka­notkun og aðrar einnota plast­vörur. Í þessum mánuði varð Vanúatú fyrsta landið til að banna einnota plastpoka, rör og matar­hylki úr frauð­plasti, en Kjarninn fjallaði áður um nýlegt bann á einnota plast­pokum í Boston.

Vill banna plast í verslunum

Í lok mars fyrr á þessu ári sendi Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar frá sér þings­ályktunar­tillögu þar sem umhverfis­ráðherra var hvattur til að banna plastpoka­notkun í verslunum og gera innflytjendum og fram­leiðendum skylt að merkja vörur sem hafa í sér plast­agnir.

Leiði þings­ályktunar­tillagan til laga­breytingu myndi Ísland meðal annars feta í fótspor Bangladess, Kína, Ítalíu, Frakk­lands, en öll löndin hafa á einhvern hátt bannað notkun einnota plastpoka.

Samkvæmt nýlegri umfjöllun BBC er yfir þriðjungur alls matar sem seldur er í Evrópu­sambandinu í plast­umbúðum. Árlegt framleitt plastmagn fyrir svæðið nær um 15,8 milljónum tonna, en það jafn­gildir um 31 kílói á hvern íbúa.

Ekki bara jákvæð áhrif

Í umfjölluninni er hins vegar einnig vikið að því hugsanlegum vanda­málum sem gætu fylgt plast­banni, sé því ekki fylgt eftir með öðrum hagkvæmum leiðum til að pakka inn mat. Samkvæmt viðmælendum frétta­stofunnar gæti bannið annars vegar skilað sér í hærri verði til neytenda, þar sem fram­leiðendur mæta auknum kostnaði vegna nýrrar umpökkunar með verð­hækkun á vörum sínum. Hins vegar er möguleiki á neikvæðum umhverfis­áhrifum vegna bannsins, m.a. vegna meiri eldsneytis­þarfar fyrir flutninga á gler­flöskum og matar­sóunar vegna verri geymslu­þols.

Nýjungar í plastframleiðslu

Samkvæmt BBC væri blátt bann á plast­framleiðslu ef til vill ekki æskileg, en mörg fyrirtæki eru nú þegar að prófa sig áfram með fram­leiðslu á niður­brjótanlegum plast­umbúðum. Meðal þeirra er breski húðvöru­fram­leiðandinn Bulldog og gosdrykkja­fram­leiðandinn Coca Cola. Einnig er endur­unnið plast nú orðið mun ódýrara en nýtt plast vegna hækkandi heims­markaðs­verðs á olíu síðustu missera.

Einnig bendir BBC á leiðir til að minnka vistspor fólks, til dæmis með endur­notkun á gömlum drykkjar­flöskum. Slíkar aðferðir eru nú þegar til staðar í Finnlandi, Þýska­landi, Danmörku og að hluta til í Ástralíu. Samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum gætu nýjar leiðir í þessum efnum sparað allt að átta milljörðum bandaríkja­dala á ári hverju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár