Einnota plastpokar bannaðir í Boston

Borgar­stjóri Boston hefur nú skrifað undir ályktun þess efnis að banna einnota plastpoka í borginni.

Boston er sextugasta borgin til banna einnota plastpoka í Massachusetts í Bandaríkunum. Martin Walsh borgar­stjóri Boston skrifaði undir ályktun þess efnis að banna notkun einnota plastpoka og mun hún taka gildi í desember á næsta ári. Til stendur að samskonar bann taki gildi í öllu Massachusetts-ríki.

Þetta kemur fram í frétt Inhabitat í vikunni. Í henni segir að 357 milljón einnota plast­pokar hafi verið notaðir í borginni á þessu ári.

Matt O’Malley borgar­fulltrúi í Boston var aðal­flutnings­maður ályktunarinnar og segir hann að mikil vinna felist í endur­vinnslu pokanna hjá starfs­mönnum borgarinnar og að 20 tonn af plast­pokum fari í svokallað „single-stream recycling“ sem felur í sér að plast, pappír, málmar og önnur efni fara á sama stað og eru ekki flokkuð sérstak­lega.

Hann segir jafnframt að einnota plast­pokar séu einungis notaðir í um 12 mínútur að jafnaði en áhrif þeirra á stræti borgarinnar og skolpræsi séu varanleg. Þessi umhverfis­sjónarmið hafi hjálpað til við að sannfæra borgar­stjórann að skrifa undir ályktunina.

Þegar bannið tekur gildi munu viðskipta­vinir þurfa að borga fimm sent fyrir pappírs­poka eða endur­vinnanlega poka.

Gagn­rýnendur ályktunarinnar segja að hún sé aftur á móti skattur á þá fátæku og hafa þeir lýst yfir óánægju með áformin. Sumir telja þetta vera óþarfa fyrirhöfn fyrir fólk sem er með minna milli handanna.

O’Malley svarar gagn­rýninni með því að segjast ætla að vinna með öllum hlut­aðeigendum til að standa við loforðið um bannið og til að tryggja íbúum borgarinnar aðgengi að endur­vinnanlegum pokum.

Mikil vakning hefur orðið á Íslandi varðandi plast­notkun undan­farin misseri. Í september síðastliðinn stóð hópur kvenna fyrir átakinu Plastlaus september sem var ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Samkvæmt aðstand­endum átaksins gekk það vonum framar og sagði ein þeirra í viðtali við Kjarnann í október að þær væru hvergi nærri hættar að vekja athygli á málefninu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár