Vilja banna plastpoka í verslunum

Þing­flokkur Samfylk­ing­ar­innar vill að umhverfis­ráðherra banni plastpoka­notkun í verslunum og geri innflytj­endum og fram­leiðendum skylt að merkja vörur sem hafa í sér plast­agnir, til að auðvelda fólki að sniðganga þær.

Þing­flokkur Samfylkingarinnar vill að umhverfis­ráðherra banni plastpoka­notkun í verslunum og geri innflytjendum og fram­leiðendum skylt að merkja vörur sem hafa í sér plast­agnir.

Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar er flutnings­maður þings­ályktunar­tillögu þessa efnis. Þar kemur fram í greinar­gerð að bann við notkun plastpoka í verslunum sé vel til þess fallið að draga úr notkun plasts og vekja athygli á þeim brýna vanda sem steðji að lífríki hafsins vegna plasts.

„Merkingar á vörum sem nota plast­agnir hjálpa neytendum að sniðganga slíkan varning en velja frekar umhverfis­vænar vörur og skapa þannig þrýsting á fram­leiðendur og innflytjendur að hugsa sinn gang í þessum efnum.“

Árið 2015 samþykkti Alþingi að tillögu Oddnýjar G. Harðar­dóttur og fleiri þingmanna úr öllum flokkum sem þá voru á þingi þings­ályktun um að draga úr plastpoka­notkun Þar var ráðherra falið að leita leiða til þess að draga úr plastpoka­notkun hér á landi. Í kjölfarið var tolla­lögum breytt og upplýsingum safnað um umfang plastpoka­notkunar hér á landi.

Árið 2016 var undir­ritaður samningur milli Samtaka verslunar og þjónustu og umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins um að draga úr notkun plastpoka. Þessi samningur var ekki endurnýjaður árið 2017. Fyrir utan almennar hvatningar frá opinberum aðilum og einstökum verslunum hefur lítið verið aðhafst í þessu máli, að því er fram kemur í svari umhverfis­ráðherra við fyrir­spurn Oddnýjar G. Harðar­dóttur um minnkun plastpoka­notkunar frá 5. mars.

„Að undan­förnu hefur átt sér stað vitundar­vakning meðal almennings varðandi hreinsun strand­lengjunnar og hefur til að mynda Blái herinn gengið myndar­lega fram fyrir skjöldu þar. Sjálfboða­liðar hafa unnið að því að hreinsa strendur landsins og í verslunum ber æ meira á því að boðið sé upp á margnota taupoka í stað einnota plastpoka. Þetta er mjög jákvæð þróun en betur má þó ef duga skal í þessum efnum. Ekki hefur gengið vel að koma á samráðs­vettvangi stjórn­valda og samtaka verslunarinnar um mark­vissar aðgerðir við að draga úr notkun plasts. Það er vissulega verðugt verkefni að hreinsa strendur landsins, en það er þó enn mikil­vægara að koma í veg fyrir að plastið lendi yfirleitt í sjónum. Áhrifa­ríkasta leiðin til þess er að draga úr notkun einnota plasts á borð við plastpoka í verslunum,“ segir í greinar­gerðinni.

Plastið nú þegar bannað víða um heim

Þegar er notkun einnota plastpoka í verslunum bönnuð í einstökum löndum. Stjórn­völd í Bangladess riðu á vaðið árið 2002. Í Kína var bann við fram­leiðslu og notkun þynnstu plast­pokanna leitt í lög árið 2008 ásamt því að ókeypis plast­pokar af öllu tagi í verslunum voru bannaðir. Stjórn­völd í Kína hafa frá og með árinu 2018 ákveðið að banna innflutning á plasti til endur­vinnslu en árum saman hafa lönd heimsins flutt milljónir tonna af slíku plasti til Kína og Hong Kong. Þetta er talið hafa mikil áhrif á endur­vinnslu í heiminum, t.d. þannig að það muni draga úr söfnun og endur­vinnslu á ákveðnum tegundum plasts og auka þannig plast­mengun. Ítalir settu bann við notkun plastpoka í verslunum árið 2012, Frakkar gerðu hið sama árið 2016 og hafa um hríð verið í farar­broddi við að banna einnota plast og verða bollar, diskar og hnífapör úr einnota plasti bönnuð frá janúar árið 2020. Frá þeim tíma verður einnota borð­búnaður að vera gerður úr minnst 50% lífrænum efnum, sem hægt er að endur­vinna á heimilum, og 60% árið 2025. Spænsku eyjarnar Mallorca, Menorca, Ibiza og Formentera hafa ákveðið að skoða bann sem taki gildi árið 2020 við sölu á ýmsum neyslu­vörum úr einnota plasti (svo sem borð­búnaði, rörum, einnota rakvélum, kveikjurum og kaffi­hylkjum). Einnig er til umræðu að krefja veitinga­staði og bari um að bjóða viðskipta­vinum ókeypis vatn í glösum til að minnka plastflösku­notkun. Ýmis Afríku­ríki hafa samþykkt eða innleitt bann við notkun plastpoka. Kenía innleiddi til að mynda bann við notkun plastpoka árið 2017 og Rúanda bannaði innflutning og notkun þunnra plastpoka árið 2004 og bann við öllum plast­pokum tók gildi árið 2008. Loks má nefna Kaliforníu­ríki í Banda­ríkjunum þar sem innleitt var bann við einnota plast­pokum í verslunum árið 2014 en bannið tók þó ekki gildi fyrr en í nóvember 2016.

„Óskandi væri að Ísland yrði í farar­broddi þjóða heims í þessari baráttu,“ segir að lokum í greinar­gerð þing­mannanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár