Hvar eru kanínurnar?

Hvað hefur orðið um kanínurnar sem ætíð mátti sjá á göngu um Öskjuhlíð? Blaða­maður Kjarnans fór í fjölda rannsóknar­leiðangra og leitaði svara hjá borginni og dýraverndar­samtökum.

Villtar kanínur eru varar um sig og forðast hvers kyns ónæði.
Villtar kan­ínur eru varar um sig og forð­ast hvers kyns ónæði. Mynd: Pexels

Svartar. Gráar. Brúnar. Mjalla­hvítar. Sumar svartar með hvítum depli á bringunni. Stundum tvær saman. Einstaka sinnum þrjár. Flestar þó einar á hoppi og skoppi. Ýmist kafloðnar eða með snöggan og glansandi feld.

Í Öskjuhlíð í Reykjavík hafa kanínur verið nokkuð áberandi frá því á síðustu öld. Þær eru villtar og hálf­villtar, afkomendur gæludýra sem sleppt var þar lausum fyrir einhverjum árum og áratugum. Nokkrir tugir kanína hafa líklega alla jafna haldið sig í skóginum sem orðinn er nokkuð þéttur og þroskaður enda hófst þar skógrækt um miðja síðustu öld.

En nú eru þær horfnar. Litlu loðboltarnir með blikið í dökkum augunum sem hægt var að koma auga á í nánast hverri gönguferð um skógar­stígana, eru hvergi sjáanlegir.

Eða það er að minnsta kosti reynsla blaða­mannsins sem þetta skrifar. Blaða­manns sem gengið hefur klukku­stundum saman um Öskju­hlíðina síðustu tvo áratugina og þekkir marga þá staði þar sem líklegt er að sjá kanínur. Þær eiga það til að sitja graf­kyrrar þegar þær verða varar við manna­ferðir. En snúa sér svo til skógar með þessum einkennandi rassa­skvettum sínum og fela sig.

Eftir marga leiðangra um Öskju­hlíðina síðustu vikur ákvað blaða­maður að spyrjast fyrir. Hvað hefur orðið um kanínurnar?

Engar aðgerðir til fækkunar

„Við höfum ekki farið í neinar aðgerðir hvað varðar kanínur í Öskjuhlíð en höfum heyrt að þær séu ekki mjög margar þessa dagana,” segir Þorkell Heiðarsson, deildar­stjóri Dýra­þjónustu Reykja­víkurborgar. Frekari stað­festingu á grun blaða­manns um fækkun kanínanna á svæðinu hefur hann ekki. Hann rifjar hins vegar upp skæða veiru­sýkingu sem kom upp í kanínu­stofninum í Elliða­árdal fyrir nokkrum árum. Sú sýking dró mörg dýranna til dauða. Stofninn er að ná sér á strik og telur innan við 200 dýr í augna­blikinu, segir Þorkell. „Annars erum við að undirbúa samstarfs­verkefni með félögunum Dýrahjálp og Villikanínum til þess að bæði fylgjast með og stýra stofnstærð í Öskjuhlíð og í Elliða­árdal sem og tryggja velferð þeirra dýra sem þar eru.”

Dýra­verndunar­samtökin Villikettir hafa verið í sambærilegu samstarfi við sveitar­félög. Eitt af því sem samtökin gera í starfi sinu er að fanga villta högna og láta gelda þá. Þeir fá svo að jafna sig af aðgerðinni en er að því loknu sleppt aftur. Aðferð sem þekkist víða um heim og hefur skilað góðum árangri við að stýra stofnstærðum. Sumum köttum sem finnast er komið fyrir á heimilum fólks, m.a. kettlingum sem fæðast úti. Mörg dæmi eru svo um að villikettirnir séu engir villikettir heldur heimilis­kettir sem hafi villst af leið jafnvel fyrir fleiri árum síðan.

En aftur að kanínunum í Öskjuhlíð.

Samtökin Villikanínur hafa ekki fengið ábendingar um að kanínunum þar hafi fækkað. Þau hafa heldur ekki fengið ábendingar um að þeim hafi ekki fækkað. Málið er snúið því enginn fylgist nákvæmlega með stofninum þótt vonandi verði breyting þar á með fyrr­greindu samstarfi samtak­anna og borgarinnar.

Talsmaður samtak­anna, sem blaða­maður var í samskiptum við á Facebook, segir mögulegt að kanínurnar í Öskjuhlíð hafi fært sig um set. Séu ekki lengur á hinum þekktu kanínu­slóðum. Það hafi frænkur þeirra í Elliða­árdalnum gert. Ónæði hvers konar getur skýrt slíka búferla­flutninga.

Og jú, vel getur verið að aukið áreiti í Öskju­hlíðinni síðustu misseri hafi orsakað þetta. Nýbyggingar hafa risið á áður óbyggðu svæði. Heilu blokkirnar hafa nú fyllst af fólki við rætur vestur­hlíðanna. Þar er iðandi mannlíf, eins og stundum segir í fasteigna­auglýsingunum. Það kann að heilla fólk en mjög ólíklega styggar kanínur.

Og talandi um fólk á iði. Hrópandi jafnvel. Í sumar var komið upp svokallaðri “zip-line”, aparólu eins og slík tæki eru stundum kölluð á íslensku, í Öskju­hlíðinni. Þetta er engin smá róla. Ferða­lagið eftir línunni byrjar ofan á Perlunni og endar í skógar­rjóðri neðan við hana. Gestir þjóta eftir línunni um 230 metra vegalengd á allt að 50 kílómetra hraða.

Þetta er hin mesta skemmtun sem fær adrenalín einhverra til að flæða um líkamann. En kanínum kann að blöskra lætin.

Í þriðja lagi, hvað aukið áreiti í Öskjuhlíð varðar, skal nefnt að breiðir og malbikaðir göngu­stígar hafa verið lagðir um svæðið síðustu tvö sumur. Þetta er „perlu­festin“, kerfi uppbyggðra (og upplýstra) stíga sem eykur aðgengi allra (manna) að þessu vinsæla útivistar­svæði. Vinnu­vélar hafa því verið að störfum með tilheyrandi hávaða vikum og mánuðum saman. Það er þó auðvitað tíma­bundið verkefni sem er að mestu lokið eftir því sem blaða­maður kemst næst.

(Mynd­bandið hér að ofan var tekið í Öskjuhlíð fyrir rúmu ári).

Allt eru þetta kenningar um hvað veldur hvarfi kanínanna. Þessar tvær svörtu sem nær alltaf mátti sjá á einum moldar­stígnum í miðjum skóginum hafa ekki sést síðan í vor. Þessi mjalla­hvíta sem stundum sat í makindum á göngu­stígnum við Háskólann í Reykjavík ekki heldur. Svo er það þessi gráa sem átti sér greini­lega fyrst og fremst samastað norðan við Perluna. Og loks sú brúna neðar í norður­hlíðinni. Tekið skal fram að við þessa rannsókn var hvorki stuðst við loft­myndir né hita­myndavélar. Aðeins tilviljana­kennda skoðun í göngu­ferðum með tveimur tæplega fimmtíu ára gömlum augum. Að hafa séð það sem eitt sinn var og er þar ekki lengur.

En svo bar til tíðinda.

Þegar nýfallinn snjór huldi jörð einn morguninn á dögunum ákvað blaða­maður að fara í enn einn rannsóknar­leiðangurinn. Vopnaður myndavél, spergil­káli og nokkrum íslenskum gulrótum.

Og viti menn (og kanínur). Á tveimur stöðum í Öskju­hlíðinni sáust spor í snjónum sem geta vart tilheyrt öðru dýri en einmitt kanínu. Löng og hlykkjótt slóð ítrekaðra „þríhyrninga“.

Það er þá að minnsta kosti ein kanína enn á svæðinu. Frekari ályktanir er erfitt að draga með jafn óvísindalegri rannsókn. Og þó. Spor sáust á tveimur stöðum. Með tölu­verðri vegalengd á milli. Það er því með nokkurri vissu hægt að fullyrða að þær séu tvær á hinum hefð­bundnu kanínu­slóðum Öskju­hlíðarinnar. „Gögnin“ styðja ekki aðra niður­stöðu að svo komnu máli.

Ef þú, ágæti lesandi, ferð reglulega um Öskju­hlíðina í hvaða erinda­gjörðum sem er, og hefur séð kanínur – eða einmitt alls ekki – þá getur þú lagt þín lóð á vogar­skálar þessarar óformlegu dýralífs­rannsóknar með því að senda frásagnir (og auðvitað myndir og myndskeið ef þú átt í fórum þínum) á netfangið sunna@kjarninn.is.

Rann­sókninni er langt í frá lokið. Ef í ljós kemur að aðrir unnendur Öskju­hlíðar hafa séð í dúsklaga skottið á fjölda kanína undan­farið verður helst hægt að álykta eitt ofar öllu: Að blaða­maður þurfi ný gleraugu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár