Læknir staðfestir að Regina þarf keisaraskurð en Útlendingastofnun vill senda hana til Nígeríu

„Ég fæ ekki sé að það þjóni neinum tilgangi að senda ólétta konu til Nígeríu,“ segir lögmaður Reginu Osaramaese. Hann vonar innilega að réttar­áhrifum verði frestað svo hún geti fætt barnið á Íslandi

Regina og börn
Regina og börn Stundin fékk leyfi Jórunnar Eddu Helga­dóttur fyrir því að birta myndir sem hún tók nýlega af Reginu og börnum hennar. Mynd: No Borders Iceland / Jórunn Edda Helgadóttir

Regina Osaramaese, ólétt kona sem Útlendinga­stofnun hefur synjað um hæli og vill senda til Nígeríu, mun þurfa á keisara­skurði að halda þegar barn hennar fæðist. Þetta stað­festir læknir með vottorði sem Stundin hefur undir höndum. 

Eins og greint var frá þann 12. júlí síðastliðinn verður ákvörðun Útlendinga­stofnunar og kæru­nefndar Útlendinga­mála, um að Reginu og tveimur sonum hennar sé synjað um hæli, skotið til dómstóla. Þá hefur Gísli Kr. Björnsson, lögmaður Reginu, óskað eftir því við Útlendinga­stofnun að brott­vísun Reginu og barna hennar verði frestað meðan á meðgöngu stendur og höfðað er mál til ógildingar á ákvörðun stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár