Verðbólga lækkar á evrusvæðinu

Ólíkt Íslandi er verðbólga lækkandi á evru­svæðinu og mælist þar 1,7% í janúar.

Verslun
Verslun Verð á mat og drykk hefur hækkað um 5,6% síð­asta árið á Íslandi en 2,6% á evru­svæð­inu. Mynd: Golli

Verð­bólgan á evru­svæðinu lækkaði niður í 1,7% í janúar úr 2% mánuðinn áður, samkvæmt tölum Eurostat yfir samræmda mælingu verðbólgu. 

Minnst var verð­bólgan í Frakk­landi (0,4%), Danmörku (0,6) og Finnlandi og Ítalíu (1%).

Á sama tíma var verðbólga í Evrópu­sambandinu öllu að meðaltali 2%.

Samkvæmt sömu mælingu er verðbólga á Íslandi 4,4%, sem er sú mesta á Evrópska efnahags­svæðinu fyrir utan Rúmeníu.

Verðbólga á Íslandi mældist hins vegar 5,2%, samkvæmt mælingu Hagstofunnar, sem er að nokkru frábrugðin samræmdu evrópsku mælingunni. Vísitala neyslu­verðs hækkaði um tæplega 1% á einum mánuði í síðustu mælingu íslensku Hagstofunnar, sem samsvarar heils árs verðbólgu í sumum framan­greindum Evrópu­löndum.

Helst er það lækkun orkuverðs sem dregur úr verðbólgu í Evrópu, en á evru­svæðinu hefur matvæla­verð hækkað um 2,6% síðastliðið ár en 5,6% á Íslandi.

Aðferð íslensku Hagstofunnar mælir meðal annars húsnæðis­kostnað öðruvísi en sú samræmda evrópska.

Talið er ólíklegt að peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands lækki stýri­vexti sína í næstu viku vegna aukinnar verðbólgu.

Ríkis­stjórnin ræddi verðbólgu­vandann á fundi sínum í morgun. Daði Már Krist­ófersson fjármála­ráðherra sagði í samtali við frétta­stofu Sýnar von á aðgerðum ríkis­stjórnarinnar í nokkrum liðum til að berjast gegn verðbólgu. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Mér sýnist að verðbólga hafi alltaf verið til staðar í ýmsum myndum alla tíðfráþvi land byggðist og alveg fram á þennann dag enn aldrei hefur það verið eins erfitt að komast af og einmitt í dag ég er farin að finna fyrir blessaðri verðbólgunni einmitt núna. Húnar farin að glefsa í kálfana á mer vist
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Einn helsti munurinn í aðferð Hagstofunnar hefur verið að ákvarðanir um hækkun eða lækkun vaxta getur aukið eða minnkað mælda verðbólgu..."

    HA??? Gæti greinarhöfundur vinsamlegast útskýrt hvað er eiginlega verið að meina með þessu? Eða þá leiðrétt textann ef um er að ræða misskilning eða villu?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár