Aðstoðarmaður borgarstjóra ráðinn, án auglýsingar, í nýja yfirmannsstöðu hjá Veitum

Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf þróunar- og viðskipta­stjóra hjá Veitum, dóttur­félagi Orkuveitu Reykja­víkur. Starfið var ekki auglýst, samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá Orku­veitunni.

Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá Veitum.
Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráð­inn í nýtt starf hjá Veitum. Mynd: Aðsend

Pétur Krogh Ólafsson, sem verið hefur aðstoðar­maður borgar­stjórans í Reykjavík frá 2014, hefur verið ráðinn í nýtt starf þróunar- og viðskipta­stjóra hjá Veitum, sem er dóttur­félag Orkuveitu Reykja­víkur (OR).

Staðan var ekki auglýst, samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá Orku­veitunni.

Í frétta­tilkynningu um ráðninguna kemur fram að Pétur komi meðal annars til með að sjá um samskipti og samhæfingu áætlana milli sveitar­félaga og Veitna og muni heyra beint undir framkvæmda­stýru fyrir­tækisins, Sólrúnu Kristjáns­dóttur.

Í tilkynningu Veitna er haft eftir Sólrúnu að Pétur komi inn á mikil­vægum tíma­punkti þegar mikil uppbygging og vöxtur sé fram undan ásamt þéttingu byggðar þjónustu­svæðum Veitna.

„Þá erum við í mörgum stórum samstarfs­verkefnum með sveitar­félögunum sem Veitur þjónusta. Slík verkefni krefjast mikils samstarfs og samskipta milli uppbyggingar­aðila þannig að við erum mjög ánægð með að fá Pétur, sem býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði, til liðs við okkur,“ er haft eftir Sólrúnu.

Í ráðningar­tilkynningunni er einnig haft eftir Pétri að með nýju starfi þróunar- og viðskipta­stjóra skapist „mikil og spennandi tækifæri til að nýta innviði betur og samræma áætlanir milli sveitar­félaga og Veitna“.

„Þannig getum við nýtt tímann og þann öfluga mannauð sem Veitur búa yfir á sem áhrifa­ríkastan máta. Ég er ótrúlega spenntur að takast á við þessi verkefni enda eru Veitur afar framsækið fyrirtæki og alþjóð­lega leiðandi á sínu sviði,“ er haft eftir Pétri um ráðninguna.

Áður en Pétur var ráðinn aðstoðar­maður Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra árið 2014 hafði hann verið bæjar­fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og sinnt ritstjórnar- og markaðs­málum á Skjánum. Hann er með BA-gráðu í sagnfræði og MA-gráðu í bókmennta­fræði frá Háskóla Íslands.

Veitur er stærsta veitu­fyrirtæki landsins og hefur það hlutverk að þróa og byggja upp veitu­kerfi sem þjónustar ríflega 70 prósent lands­manna á einn eða annan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár