Fleiri sektaðir fyrir nagladekkjanotkun utan leyfilegs tímabils í ár en fjögur árin á undan

Ekki er ljóst á hvaða laga­heim­ild það er byggt að sekta ekki fyrir notkun nagla­dekkja fyrstu vik­urnar eftir að bann við notk­un­inni tekur gildi ár hvert. Þrjár af hverjum fjórum sektum í ár hafa verið gefnar út á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, spurði dómsmálaráðherra um nagladekk.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, spurði dóms­mála­ráð­herra um nagla­dekk. Mynd: Bára Huld Beck

Fleiri voru sektaðir af lög­reglu fyrir notkun nagla­dekkja á rúm­lega fyrstu tíu mán­uði árs­ins 2022 en sam­an­lagt tvö árin á undan. Frá byrjun árs til 6. nóv­em­ber voru 116 ein­stak­lingar sektaðir vegna notk­unar á nagla­dekkjum utan þess tíma­bils sem má aka um á slíkum. Árin 2020 og 2021 voru sam­tal 86 sektaðir fyrir ólög­lega nagla­dekkja­notkun. Taka verður inn í dæmið að á þeim árum geis­aði kór­ónu­veiru­far­aldur sem tak­mark­aði ferða- og akst­urs­frelsi. Sektir sem gefnar hafa verið út í ár eru líka mun fleiri en þær sem gefnar voru út árið 2018 og 2019.

Þetta kemur fram í svari Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Pírata, um sektir vegna nagla­dekkja.

Samkvæmt gild­andi reglu­gerð má ekki aka um á nagla­dekkjum frá 15. apríl til 31. októ­ber, nema þess sé þörf vegna akst­urs­að­stæðna. Engin sekt er þó gefin út fyrstu tvær vik­urnar eftir að bann tekur gildi og síð­ustu tvær vik­urnar eftir að það rennur út.

Þrjár af fjórum sektum í ár á höfuðborgarsvæðinu

Í svari ráð­herra kemur í ljós að mun meira hefur verið sektað í ár en mörg árin á undan. Árið 2018 voru til að mynda 53 sektaðir fyrir ólög­lega notkun nagla­dekkja. Það ár var sekt vegna slíkrar notk­unar hækkuð umtals­vert, úr fimm þús­und krónum á hvert dekk í 20 þús­und. Fyrir þann sem ekur á fjórum nagla­dekkjum utan leyfi­legs tíma er sektin því 80 þús­und krónur.

Fyrsta árið eftir að sektin var hækkuð fjölg­aði þeim veru­lega, og voru 93.

Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum varð, líkt og áður sagði, mik­ill sam­dráttur en mik­ill kippur hefur orðið í sektum vegna nagla­dekkja­notk­unar á fyrstu rúmu tíu mán­uðum yfir­stand­andi árs. Þær 116 sektir sem gefnar voru út á því tíma­bili eru 152 pró­sent fleiri en allt árið í fyrra.

Í svar­inu kemur fram að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er lang­dug­leg­ust við að útdeila sektum vegna nagla­dekkja­notk­unar, en 75 pró­sent allra sekta það sem af er ári voru gefnar út af henni. Alls búa um 63 pró­sent lands­manna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þar er mest öll stjórn­sýsla og mikið af nauð­syn­legri þjón­ustu lands­ins og því margt þangað að sækja fyrir þá sem búa ann­ars staðar á land­inu. Yfir fimm ára tíma­bil er hlut­fall sekta sem lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó nær hlut­falli íbúa, eða 65 pró­sent.

Mikil aukning á notkun nagladekkja

Í gögnum sem lögð voru fram á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur fyrr í þessum mán­uði kom fram að fleiri voru komnir á nagla­dekk fyrstu vik­una eftir að það var heim­ilt í ár en í sömu viku árið 2001. Nú voru 15 pró­sent bif­reiða í borg­inni komin á nagla­dekk, sam­kvæmt úttekt sem Efla fram­kvæmdi fyrir borg­ina, en árið 2001 var það hlut­fall ein­ungis þrjú pró­sent.

Sam­kvæmt nagla­dekkja­taln­ingum sem fram­kvæmdar voru fyrir Reykja­vík­ur­borg síð­asta vetur voru rétt um 40 pró­sent bif­reiða í borg­inni á nögl­um, frá miðjum nóv­em­ber og fram í byrjun mars hið minnsta. Þetta hlut­fall hefur hækkað frá vetr­inum 2016-17, er um 32 pró­sent bif­reiða í borg­inni voru á nöglum yfir vet­ur­inn.

Ekki er ósenni­legt að stór­auk­inn fjöldi bíla­leigu­bíla í umferð frá þeim tíma eigi þátt í þess­ari aukn­ingu, en borgin sjálf hefur nefnt það sem lík­lega ástæðu fyrir auknu hlut­falli bíla á nagla­dekkjum síð­ustu ár.

Spurði um heimild til að fara á svig við lög

Vegna þessa lögðu full­trúar Sam­fylk­ing­ar, Fram­sókn­ar, Pírata og Við­reisnar í umhverf­is- og skipu­lags­ráði borg­ar­innar fram sam­eig­in­lega bókum þar sem þeir sögð­ust telja „óheppi­legt að lög­reglan lýsi því yfir hvað eftir annað að ekki verði sektað fyrir fyrir notkun nagla­dekkja áður en nagla­dekkja­tíma­bilið hefst“ og segja að sú spurn­ing vakni óhjá­kvæmi­lega „hvort lög­reglan hafi heim­ild til að fara á svig við lög­in“.

Var þar verið að vísa í þá hefð að sekta ekki fyrstu tvær vik­urnar eftir að bannið tekur gildi þann 15. októ­ber ár hvert, og tvær vik­urnar eftir leyfi­legum nagla­dekkja­notk­un­ar­tíma lýkur 15. apríl.

Andrés Ingi spurði dóms­mála­ráð­herra á hvaða laga­heim­ild það byggði þegar lög­reglan til­kynnti um það að önnur tíma­mörk giltu en þau sem getið væri um í reglu­gerð. Í svari Jóns, sem byggði á upp­lýs­ingum frá lög­reglu­emb­ættum í land­inu, kemur fram að sveigj­an­leik­inn sem hefð hefur skap­ast fyrir virð­ist fyrst og fremst byggja á vís­unum í veð­ur­skil­yrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár