Rússar vilja aflétta viðskiptaþvingunum á Norður-Kóreu

Yfirvöld í Rússlandi vilja aflétta viðskipta­þvingunum á Norður-Kóreu eftir fund leiðtoga Norður-Kóreu og Banda­ríkjanna.

Rússar vilja að Sameinu þjóðirnar bregðist við fundi Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, og Donald Trump, Bandaríkja­forseta, og aflétti viðskipta­þvingunum á Norður-Kóreu.

AFP greindi frá þessu í dag, en Rússar hafa þegar talað fyrir þessu innan öryggis­ráðs Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt hefur endur­tekið að beita Norður-Kóreu viðskipta­þvingunum vegna tilrauna með kjarnorku­vopn og lang­drægar flaugar.

Meðal þeirra viðskipta­þvingana sem Norður-Kórea hefur verið beitt, eru hömlur á olíu­innflutningi. Þetta hefur leitt til víðtækra efnahagslegra áhrifa í þessu einangraða 25 milljóna íbúa landi.

Eitt af því sem Banda­ríkin hafa lagt að Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, að gera er að afvopnast kjarnorku­vopnum fyrir árslok árið 2020. Þrátt fyrir að fundi Kim Jong Un og Trump hafi lokið á vinsam­legum nótum í gær, með undir­ritun vilja­yfir­lýsingar um áfram­haldandi viðræður, þá liggur ekki fyrir enn hvert fram­haldið verður í samskiptum ríkjanna.

Vilja­yfir­lýsingin þykir þó bæði söguleg og skref í rétta átt að því marki, að tryggja frið og draga úr spennu á Kóreu­skaga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár