Tímabært að „henda grímunni“

Í dag kemur í ljós hvort dönsk stjórn­völd fallist á tillögu farsóttar­nefndar um að aflétta nær öllum takmörkunum í landinu á næstu dögum. „Tímabært“ segja margir sérfræðingar en einhverjir eru þó skeptískir á tíma­setningu.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Danska farsóttar­nefndin telur að COVID-19 ógni ekki lengur samfélaginu og mælir með því að nánast allar takmarkanir verði afnumdar 31. janúar. Eina undan­tekningin verði skimun farþega sem koma til landsins og einangrun þeirra ef þeir greinast jákvæðir.

Þetta mun þýða, samþykki stjórn­völd tillögur nefndarinnar, að grímu­skylda verður afnumin og engar fjölda takmarkanir verða á baðstöðum og stórum viðburðum svo dæmi séu tekin. Danska ríkis­útvarpið segir að forsætis­ráðherrann Mette Frederiksen muni halda blaðamanna­fund í dag og tilkynna ákvörðun stjórn­valda.

Met fjöldi smita hafa greinst í Danmörku, rétt eins og á Íslandi, síðustu daga. Engu að síður telja margir sérfræðingar sem Danska ríkis­útvarpið ræðir við að tímabært sé að „henda grímunum í ruslið“ og losa um allar takmarkanir í dönsku samfélagi.

„Jafnvel þótt smit­fjöldinn sé mikill eru ekki margir sem þurfa á gjörgæslu­meðferð að halda,“ segir Alan Randrup Thomsen, prófessor í veiru­fræðum við Háskólann í Kaupmanna­höfn. Hann segir að ennfremur séu smitaðir íbúar öldrunar­heimila fæstir alvarlega veikir. Thomsen hefði hins vegar viljað sjá losað um takmarkanir í nokkrum skrefum svo bregðast megi við ef eitthvað óvænt komi upp á. Hann nefnir sérstak­lega nætur­lífið – skemmtistaðina – sem hann hefði viljað bíða með að opna án takmarkana. Ástæðan er ekki heilsufarsleg heldur sú að hann vill koma í veg fyrir að skortur verði á „vinnandi höndum“ vegna smita.

Thomsen spáir því að smitum eigi eftir að fjölga samhliða afléttingum en að sjúkrahús­innlögnum eigi ekki eftir að fjölga skarpt líkt og þegar delta-afbrigðið geisaði.

Hættan er að líða hjá

„Í tvö ár höfum við aðvarað almenning um hversu hættu­legur sjúk­dómurinn er. Núna þurfum við að skýra út fyrir fólki að hættan er að líða hjá.“

Þetta hefur Danska ríkis­útvarpið eftir Jes Søgaard, prófessor í heilsu­hagfræði. Hann sér ekkert athuga­vert við það að aflétta takmörkunum. „Þetta hljómar skynsamlegt í mín eyru,“ segir hann og bætir við að hin „bráða hætta“ af völdum COVID-19 sé yfirstaðin. Søgaard segist ekki óttast afléttingarnar. Bæði sé ljóst að ómíkron valdi minni einkennum og eins hafi meðferðum við COVID-19 fleygt fram.

Danska ríkis­útvarpið ræðir einnig við Viggo Andreasen, aðstoðar­prófessor í lýðtölfræði við Hróarskeldu­háskóla. „Við erum að nálgast tímapunkt þar sem takmarkanir eru óþarfar. Það er ljóst að faraldurinn er á fleygi­ferð í augna­blikinu en að fáir þurfa að leggjast inn á sjúkrahús.“ Hann er þó á því að bíða mætti með afléttingar í einhverjar vikur, leyfa faraldrinum að ganga yfir innan takmarkana til að vernda hjúkrunar­heimili, skóla og spítala og þá á hann við hlífa þeim við smitum eða veikindum fjölda starfs­manna í einu.

Eskild Petersen, prófessor emertus í smit­sjúkdómum, er hins vegar mun gagnrýnni á fyrir­hugaða afléttingu. „Af hverju ósköpunum ættum við að gera þetta?“ segir hann við Ritzau-frétta­stofuna. „Við vitum að það mun koma nýtt afbrigði,“ heldur hann áfram og það gæti sett sjúkra­húsin á hliðina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár