Spennan milli Bandaríkjanna og Rússa magnast

Stefnu­breyting Trumps í málefnum Sýrlands hefur leitt til mikillar spennu milli Rússa og Banda­ríkjanna. Rússar hafa stutt stjórnarher Sýrlands í aðgerðum í borgar­styrjöldinni í landinu.

Samskipti Bandaríkjanna og Rússlands voru mikið í umræðunni í aðdraganda forsetakosninga í Bandaríkjunum í haust.
Sam­skipti Banda­ríkj­anna og Rúss­lands voru mikið í umræð­unni í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum í haust. Mynd: EPA

Árás Banda­ríkjanna á valin skotmörk í Sýrlandi felur í sér mikla stefnu­breytingu af hálfu Donalds Trumps í utanríkis- og varnar­málum. Í árásinni var 59 Tomahawk flug­skeytum skotið á hernaðar­lega mikilvæg mannvirki stjórnar­hersins, meðal annars skotpall við Sayhtar flug­völlinn í borginni Homs. Þaðan á efna­vopnum að hafa verið skotið í síðustu viku, samkvæmt upplýsing sem bandarísk stjórn­völd hafa gefið út, þegar um 80 óbreyttir borgarar féllu, þar á meðal 20 börn.

Árásin var svo til fyrirvara­laus og var ákvörðun um hana tekin af Trump sjálfum, framhjá Banda­ríkjaþingi. Skila­boðum var komið til Rússa áður en hún var gerð, en flug­skeytunum var skotið af herskipi Bandaríkja­hers í Miðjarðar­hafi.

Vladímir Pútín, forseti Rússlands, brást illa við árásinni. Hann sagði að hún hefði strax grafið undan samskiptum Banda­ríkjanna og Rússa, og að við henni yrði brugðist. Bæði Pútín og Medvedev forsætis­ráðherra Rússlands fordæmdu einnig lagalega stöðu árásarinnar og sögðu augljóst að um einhliða árás á annað fullvalda ríki væri að ræða, og slíkt myndi ekki samrýmast alþjóða­lögum. Pútín hefur sagt að málið eigi að taka upp á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í viðtali í gær, að Banda­ríkin væru tilbúin í frekari átök, og að hernaðar­aðgerðirnar myndu þá beinast gegn stjórnarher Sýrlands, sem Assad forseti stýrir.

Í frétta­skýringu á vef New York Times er fullyrt, að með þessari stefnu­breytingu sé Trump að stilla Banda­ríkjunum upp gegn Rússum, Kína og Norður-Kóreu, jafnvel þó Trump hafi sagt að hann væri „100 prósent“ sammála Xi Jinping, forseta Kína, eftir fund þeirra í gær. Vísaði hann þar til þess að þessi risaveldi hefði skyldum að gegna þegar kæmi að því að stuðla að heims­friði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár